fimmtudagur, 15. febrúar 2007

Lostug tröll

Lostug tröll

Tröll eru með sundurleitu móti við menn í íslenskum bókmenntum. Í þjóðsögunum er þó nokkuð um að tröll séu mannskæð, jafnvel mannætur, og það jafnvel svo heiftarlegar, að þeim nægir ekki minna í matinn en presturinn sjálfur, beint úr prédikunarstól (Mjóafjarðarskessan, Þjóðsögur JÁ I, 146). Er þetta hámarkið á andkristni trölla, sem birtist einnig í því að þau þola ekki klukknahljóð. Hér er ekki rúm til að rekja þetta, en lítillega skal hugað að öðru, sem er fullkomin andstæða þessa, þ.e. að tröll sýni fólki losta.
Það minni er í Snorra-Eddu, í sögunni af Skaði Þjassadóttur (Skáldskaparmál, 3. k.), að dóttir jötuns sem drepinn var, krefst þess í föðurbætur að fá eiginmann úr hópi ása, ætlaði sér þannig Baldur, en fékk Njörð. Þetta er einnig í Helga kviðu Hjörvarðssonar, en þar er skessan, Hrímgerður Hatadóttir hógværari (24. er.)

eina nótt
kná hún hjá jöfri sofa
þá hefir hún bölva bætur.

En Atli félagi Helga tefur hana með kjaftagangi og illyrðum, svo þetta nátttröll dagar uppi. Í Fornaldarsögum Norðurlanda er mikið um þjóðsagnaminni og ævintýra, eins og alkunna er. Þar má m.a. nefna Þorsteins sögu Víkingssonar, en í einum af mannraunum sínum verður Þorsteinn skipreika í gerningaveðri, og er að springa á sundi, þegar „kerling ein stór óð út að honum, og var í skorpnum skinnstakki, hann var síður í fyrir, en stuttur á bak; hún var stórskorin mjög og heldur greppleg [lesbrigði: greipileg] í ásjónu.“ (FAS II, 435). Hún bjargar Þorsteini hvað eftir annað, loks með því skilyrði að hann gangi að eiga hana. En þegar hann gengur að því, raunar mjög tregur, þá losnar hún úr þessum álagaham, reynist vera hin fegursta kóngsdóttir, eftir því efnuð, og giftist Þorsteini (s.r.,bls. 440). Eins er skessa klædd í Illuga sögu Gríðarfóstra, og þó miklu ferlegri ásýndum (s.r. III, 653):

honum þótti sem hríð eða hregg [lesbrigði: hagl] stæði úr nösum hennar; horinn hékk ofan fyrir munninn, hún hafði skegg, og sköllótt um höfuðið [með skringilegum búnaði (sum hdr)], hendur hennar voru sem arnarklær, en ermar báðar brenndar, en sá stakkur, er hún var í, tók henni eigi lengra en á lendar á bakið, en allt á tær í fyrir; augu hennar voru græn, en ennið bratt [um vangana hvar vill (sum hdr)], eyrun féllu víða; enginn mátti hana kalla fríða.

Einnig þessi ódámur krefst hvílubragða af söguhetjunni, en þó ekki við sig sjálfa, heldur við dóttur sína undurfagra. Verður þetta þó (auk óttaleysis söguhetju gagnvart morðhótunum skessu) til að leysa skessuna úr álögum (s.r. III, 653 o.áfr.). Víðar er þessi missíði stakkur í fornaldarsögunum, t.d. í Sögu Egils og Ásmundar (III, 387);

hann sá þar á hól einum jötunn mikinn og eina flagðkonu, þau drógust um einn gullhring, og varð hún orkuvana fyrir honum, og fór hann hraklega með hana, og mátti þar sjá viðrlitamikil sköp, því hún var stuttklædd“. Fyrr í sögunni hitta þeir félagar skessu (bls. 372): „Þeir sáu kvikindi uppi í hömrunum, það var meira á þverveginn en hæðina; það var svo hvellt sem bjalla, og spurði, hverir svo djarfir væri, að stela vildu hafri drottningarinnar. Ásmundur mælti: hver ertu hin fagra og hin bólfimlega.

Þessi öfugmælakveðja er að skoplegri vegna þess að skessan tekur hana alvarlega og þorir ekki að þiggja fingurgull af þeim félögum, „því eg veit, að móðir mín segði, að það sé hvílutollur minn.“ Þetta minnir lítillega á það atriði í seinni tíma þjóðsögu, að það gefst vel að ávarpa tröll kurteislega (JÁ I, 150-151), skessa snýst frá illskulegum hótunum til vinahóta við ávarpið: „Sitjið þér heilar á hófi/ Hallgerður á Bláfjalli.“. Raunar er það alþekkt minni, að það borgar sig að gera vel við flagð eða vesaling (svo sem í fyrrnefndri lausn úr álögum), og varðar það ekki þessa grein. En skinnstakkurinn missíði kemur einnig fyrir í þjóðsögum, t.d. (Þjóðsögur JÁ III, 235): „sáu kvikindi í kvenmynd, ekki fjarska hávaxið en digurt mjög. Það var í skinnstakki skósíðum í fyrir en stuttum á baki.“ Eins er búnaður annarrar skessu, og er útliti hennar ekki lýst, en það er þó ekki verra en svo, að söguhetjan barnar hana (s.r. III, 272-3). Víðar kemur það atriði fyrir, sem og þessi klæðnaður.
Það er dálítið skondið, að íslenska söngkonan heimskunna, Björk, klæðist blússum með þessu sniði, en gengur að sönnu í gallabuxum undir. En athyglisvert er, að þegar tröll seilast til manna, þá eru það oftar tröllkonur en tröllkarlar, jafnvel þegar mennskri konu er rænt, svo sem í sögunni af konunni í Málmey, sem lenti á bak við Hálfdánarhurð (Þjóðsögur JÁ IV, 533-35) „ein er þar kona krossi vígð/ komin í bland við tröllin“ , svo sem segir í Áföngum Jóns Helgasonar. Tröllkarlar sem komast í tæri við mennskar konur, eru oft sagðir fríðir og mannvænlegir, enda að hálfu mannsættar. Þá er hinsvegar móður þeirra lýst sem ljótu og mannskæðu flagði, sem tröllkarlinn drepur (sjá Móðarsþátt o.fl., s.r. III, 253 o.áfr.). En mest kveður að sögunum af Kráku, Trölla-Láfa og Jóni Loppufóstra (Þjóðsögur JÁ I, 178-86). „Skessa mikil sat þar upp á jökulgnípu einni. Hafði hún það atferli að hún rétti hendurnar fram á víxl og dró þær svo upp að brjóstinu og var hún með þessu að heilla [sofandi] manninn til sín“ (s.r., 183-4). Í þokunni stelur skessa sauðamanni, stundum eru þær tvær saman og leggja hann milli sín. „Iðulega tóku þær hann og mökuðu í eins konar smyrslum eða feiti og teygðu hann milli sín; fannst honum það mikil raun. Þær orguðu líka í eyru honum til að trylla hann.“ (s.r., I, 182). Af þessu verður hann smám saman óskaplega langur, og þótt hann að lokum sleppi til byggða, varð hann skammlífur eftir það. Annar piltur er stríðalinn af skessu heilan vetur, auk þess glímir hún við hann á hverjum morgni, og styrkist hann mikið við þetta. (s.r.III, 278). Þessir menn gera sér loks upp veiki, og segjast ekkert geta borðað nema tólf ára gamlan hákarl. Umhyggjusöm skessan verður að fara á annað landshorn til að sækja hann, en á meðan sleppur söguhetjan til byggða.
Nú er það alkunna í þjóðsögum, að vættir leiti fylgilags við menn. Einkum á það við um álfa. Stutt er og milli tröllasagna og útilegumannasagna, oft eru þetta sömu sögurnar með breyttum vættum, en útilegumenn eru einkar sæknir í byggðastúlkur. Þetta tvennt tengist þannig, að álfarnir eru, eins og allir vita, yfirleitt fríðir og efnaðir, sama gildir um margar þessara útilegumannasagna, þótt einnig komi þar fyrir kvensöm illmenni. Þessar sögur eru þá auðsæilegir draumórar um að fá prinsinn, draumórar sem enn yfignæfa í skemmtisögum nútímans. Tröllkarlasögurnar mega og flokkast hingað, því það hefur jafnan þótt kostur á mennskum körlum að þeir væru stórir, sterkir og stæðilegir. Stúlkan og tröllkarlinn unnast og jafnan til æviloka. En um skessurnar gegnir nokkuð öðru máli. Enda þótt þær séu sjaldnast beinlínis sagðar ljótar, þá er útliti þeirra yfirleitt ekki lýst jákvætt heldur. Um skeið hélt ég að afskræmilegar kvenlýsingar sagnanna stöfuðu af bælingu á kynhvöt höfunda, sem birtist því rangsnúin. En nú kalla ég þessa túlkun mína dólgafreudisma, því slíkar lýsingar eru býsna fáar, og einkum í fornum ritverkum. Í dæmunum hér að framan virðist eðlilegra að sjá þær lýsingar sem spaugilegar andstæður hugleiðinganna um bólfarir. En hvaða hugarfar býr þá að baki þessum þjóðsögum, um stórar og sterkar konur, sem einar draga ærna björg í bú, og taka ekki bara frumkvæðið að ástum, heldur grípa hreinlega karlmanninn og leggja hjá sér. Það er víst nokkuð augljóst að höfunda og flytjendur slíkra sagna finnum við með sömu aðferð og notast til að miða út markhóp t.d. James Bond sagnanna; sá markhópur er einfaldlega andstæða hetjunnar. Í stað kvennagullsins, sem þorir hvað sem er, leggur allt undir í fjárhættuspili, og lífið að veði til að bjarga einhverri kvengyðjunni, eða auðvaldskerfinu, þá birtist sem lesandi slíkra sagna óframfærinn maður í lágri stöðu, sem verður lítt til kvenna eða fjár, en dreymir um byssuleyfi til að drepa ríka og volduga kalla, kannski yfirmann sjálfs sín. Og ætli framangreindar tröllasögur sýni ekki svipað hugarfar aftur í öldum, úrræðalausa karlmenn, sem dreymir um að kona komi og taki þá, og leysi öll þeirra vandræði. Getum við ályktað eitthvað nánar? Að þarna fari t.d. niðursetningur, sem hafi verið tekinn frá móður sinni á unga aldri og settur til vandalausra sem sýndu honum kulda? Nei. Þegar ég fluttist til Danmerkur árið 1987, til að vinna í Árnasafni, lagði ég mig fram um að komast inn í danskt þjóðlíf, gekk m.a. í stjórnmálaflokk og umræðuhópa karlmanna (mandegruppe). Og í slíkum hópum reyndist fyrrgreint hugarfar almennt. Einu gilti í hve ágætri sambúð þessir menn voru, allt var það grátt og einskis nýtt, af því að konan var ekki nógu sjálfsörugg og ráðrík. Ég held að það væri mjög villandi að tala um Bægifótarduld (en það mun orðrétt þýðing á „Ödipusarkomplex“ skv. Einari Má Jónssyni, íslenskukennara í Svartaskóla). Þessa menn langaði ekkert til að hafa mök við mæður sínar. Þeir höfðu bara alist upp við það að þær ákvæðu allt, og fannst lífið tómlegt án slíks tilfinningamynsturs. Danir kalla þetta „moderbinding“ og það hafa sumir Íslendingar þýtt hrátt sem „móðurbindingu“. En væri ekki nær að kalla þetta skessufíkn?

Stafsetning er að sjálfsögðu samræmd.

Heimildir:

Edda Snorra Sturlusonar ...ved Finnur Jónsson. Kbh. 1931.
Fornaldar sögur Nordrlanda ... útgefnar af C.C. Rafn, I-III. Kbh. 1829-30.
Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Safnað hefur Jón Árnason. Ný útgáfa I-VI, Reykjavík 1954-61.
Norræn fornkvæði ...udgiven af Sophus Bugge ...Oslo 1965.

1976-98.

Hæ og vei


Hæ og vei
I. Allt frá því ég fyrst man eftir mér hefur verið býsnast yfir bandarískum áhrifum á íslenskt þjóðlíf. Þó miklu meir á unglingsárum mínum fyrir fjórum áratugum en nú er. Satt að segja þótti þá flest benda til þess að íslensk menning væri í andarslitrunum og ,,amerísk skrílmenning” kæmi í stað hennar á Fróni. Þetta sýndi sig ótvírætt í því að unglingar notuðu upphrópanirnar sem eru fyrirsögn þessa pistils, ,,jórtruðu tyggigúm í gríð og erg” (það var bannað í öllum skólum, held ég), sóttust eftir fötum með nýju erlendu (amerísku) sniði, hlustuðu á dægurlög frá Bandaríkjunum (að vísu oftast við íslenska texta Kristjáns frá Djúpalæk og félaga) og það sem verst var, hlustuðu á þennan ófögnuð úr ,,glymskröttum” (,,djúkboxum), jafnframt því sem þeir slöfruðu í sig mjólkurís frá Dairy Queen. Fimmtuigsafmælisbarnið Guðrún Ása Grímsdóttir er af þessari óþjóðlegustu kynslóð, þótt ég hinsvegar hafi ekki heimildir um hegðun hennar og málfar á unglingsárum. Það er skondið, að nú eru þessi erlendu einkenni, sem áttu alveg að vera að drekkja íslenskri menningu, orðin svo sjaldgæfir forngripir, að fólk gerir sér sérstaka ferð upp í Árbæjarsafn til að sjá þá. En auðvitað hefur þá sitthvað nýrra komið í staðinn, einnig oft frá Bandaríkjunum. Sérstaklega blöskrar mörgum þjóðræknum Islendingum, hve mikið unglingar nota upphrópanir ættaðar úr bandarískum kvikmyndum. I stað þess að segja ,,andskotans helvíti” eða ,,helvitis andskoti” segi þeir ,,sjit”, ,,fökk”, ,,vá”, ,,vei”, og heilsist með orðinu ,,hæ”, einsog reyndar Danir gera líka. Þeir kveðjast hinsvegar með því að tvítaka þá kveðju, ,,hej, hej”, þar sem Íslendingar kveðjast þó enn með því að segja bless. Einhverjir segja kannski ennþá ,,bæ”, en ,,bæbæ” og ,,bæjó” getur enginn sagt lengur nema afhjúpa sig sem hlægilegan lúða, sem sé aftur úr allri tísku. 
Það mætti nefnilega reyna að hughreysta þetta áhyggjufulla þjóðrækna fólk með því að benda á að ekkert verður eins úrelt, aflægislegt og hlægilegt og slík tíska, þegar hún er orðin (fárra ára) gömul. Sömuleiðis mætti draga í efa að þetta háttalag unglinga nú, eða fyrir fjörutíu árum, sé neitt órnerkilegra en þeirra sem þótti ekkert fínt nema það væri danskt, fyrir 60—70 árum eða fyrr. En mér finnst hitt merkara, að öll þessi áhrif eru sem hjóm miðað við hitt, hversu mikil frumleg sköpun er í íslenskri menningu á hverjum tíma. Og á sýnist mér augljóst, aö hún er miklu meiri, almennari og fjölskrúðugri nú, en hún var íyrir bara 20—30 árum. Virðist því ekki ástæða til að hafa áhyggjur af íslenskri menningu — nema þá af þeirri hættu sem henni stafar af fólki sem vill frysta hana í einhverju ástandi sem það þekkti frá æskuárum sínum.
II. 
En nú kemur óvænt heimild til skjalanna, nefnilega Málskrúðsfræði Ólafs Þórðarsonar, frá miðri 13. öld. Þar eru m.a. tekin dæmi af upphrópunum, og segir svo (í lok IX. kafla): 

Meðalorpning sýnir hugþokka rnanns, og er hún jafnan frá skilið öðrum pörtum, sem hér, vei, haì.

Hér er þá ótvíræður vitnisburöur um að þessar ,,amrískustu” af öllum upphrópunum unglinganna, ,,hæ og vei”, eru forn menningararfur Islendinga, raunar telur Olafur Þórðarson engar aðrar upphrópanir! Orð hans "meðalorpning" er bein þýðing á latínuorðinu "interjection", sem er notað alþjóðlega í þeirri merkingu. Mættu þá sumir þjóðræknir áhyggjumenn róast nokkuö. 
Nú er þess aö gæta að skv. fornmálsorðabók Fritzner kemur ,,hai” aðeins tvisvar fyrir auk framangreindrar tilvitnunar, þ.e. í biblíuþýðinunni Stjórn og í Parcevals sögu (12. k., bls. 250). Ekki hefur orðasafn Árnanefndar í Kaupmannahöfn fleiri dæmi. En Fritzner hefur einnig orðmyndir sern augljóslega eru skyldar; ,,há” og ,,hó”, Fritzner tilfærir dæmi úr Maríusögu, bæði kveinstafi: ,,há mig” og undrun, aðdáun: ,,há, há, herra minn!” Svipuð er notkunin á ,,hó” skv. Fritzner, en skemmtilegasta dæmi þess er í Elíssögu (56. k.): 

Hryggur var Julien, er hann kenndi sig af hesti fallinn og ... sá að hann stappaði niður fótum og vildi gjarnan drepa hann. En þá mælti Julien: ,,hó, hó, hinn góði Arabfa hestur!” kvað hann, ,,mjög heitast þú nú við mig og ógnar mér dauöa .. 
[og áfr., fortölur til hestsins].

,,Vei” er miklu algengara, en mest ber á þeirri upphrópun í þýddum sögum; Barlaamssögu, Karlamagnússögu, riddarasögum og trúarlegum ritum, auk konungasagna; vei er og oft notað sem nafnorð. Fritzner rekur dæmi ss.: ,,vei er nú heiðingjum að eg em lauss” (Elucidarius), áþekk eru dæmi hans úr konungasögum: ,,vei verði honum" segja tröll um Ólaf Tryggvason, en í Sverrissögu segir Sverrir reiður við son sinn: ,,vei verði þeim konungssyni, er svo iIla gætir sinnar sveitar, sem þú hefir gætt.” Ásgeir Blöndal telur í Orðsifjabók sinni dæmi úr náskyldum málum, sem benda eindregið til að þessi upphrópun sé forn í málinu, en a.m.k. notkunin virðist lituð af latínu ,,vae” (eins og í ,,vae victis”), enda oft þýðing á því; t.d (í orðasafni Árnanefndar). ,,vei verði þér borg, er púta mættir heita” — ,,vae tibi civitas meretrix” (Pál 187,6), og virðist líklegast að fyrirmynd þessa orðalags, einnig í dæmum konungasagnanna, sé erlend rit fremur en daglegt mál á Íslandi. 
Samkvæmt Fritzner eru furðufá dæmi um aðrar upphrópanir. Aðeins tvö um ,,æ”, í Jómsvíkingasögu og í 2. málfræðiritgerð Snorra-Eddu; (bls. 64): ,,æ, það er veinun”. Sama gildir um ,,á” skv. 1. bindi Orðabókar Arnanefndar, og er það algengt sársaukakvein víða um heim, svo sem alkunna er. Hið fyrra er einkennilegt, því þessi bókstafur æ merkti langt opið [e:j á fyrra hluta 13. aldar, þegar þessi málfræðiritgerð er tekin saman, það var ekki fyrr en löngu síöar, sem það breyttist í núverandi frb. í íslensku: [ai]. Víða um Iönd kveinar fólk [ai}, en hvar í veröldinni heyrist kveinað [e:]? Skyldi annaðhvort vera ranglega tímasett, 2. málfræðiritgerðin eöa tvíhljóðunin? 
Um ,,ó” eru dæmin miklu fleiri, en eingöngu í þýddum ritum, og flest eru au trúarleg; ,,ó! góðir menn! fagrar jarteinir megu þér nú heyra” og ,,ó! lávarður minn góði!”, ,,ó, hossun yður, er hlægið” (Hómilíubókin), ,,ó, son, ó, son! æsileg og óaflátleg er ótrú gyðinga” (Maríusaga). Einnig ,,ó” er algengt í latínu og frönsku, sem hér er þýtt úr, en vitaskuld getur það verið forngermanskt fyrir því, svo sem Ásgeir Blöndal telur líklegast, en nefnir þó að ýmsir hafi talið þetta vera tökuorð úr latínu. Mikil eftirsiá er í því að meðalorpningin ,,ó, hossun” skyldi ekki haldast í málinu, þaö væri munur að geta prýtt mál sitt með slíku. Hún er norrænnar ættar skv. Ásgeiri Blöndal, stýrir þgf. eins og vei, og merkir það sama. Eins og allir vita hefur ,,vá” verið tekið inn í nútímamál úr fornri íslensku, til að mynda sem liður í orðinu vátrygging. Það má mikið vera, ef fornmenn hafa ekki einhverntínia hrópaö ,,vá”, borið fram: [vaa], þegar þeim þótti voði steðja að. Er þá skammt yfir í nútímaupphrópunina, þótt framburður hafi breyst og merkingin sé tekin frá könum, að láta í ljós undrun eða aðdáun, Iíkt og ,,hæ” er nú heilsan, frekar en upphrópun. — Hér verður þess að geta, að mötunautar mínir, þeir Jóhannes Bjarni Sigtryggsson og Ármann Jakobsson bentu mér á klausu um upphrópanir í grein Guðrúnar Kvaran um málfræði Runólfs Jónssonar, en hún er fyrsta beygingafræði íslenskrar tungu, Recentissima antiquissimæ linguæ septentrionalis incunabula, id est graminaticæ Islandicæ rudimenta ... frá 1651. Guðrún rekur þar eftir Runólfi m.a. (bls.138): 

Ef láta á í ljós aðdáun er hrópað upp: hva! aa! eða hvaðalaatum! Ef Ieggja á áherslu á samþykki er aftur á móti notað jaavel! Sem einhvers konar ógnun er notuð upphrópunin biby, en svei, fuy eða vei ef manni ofbýður. Ef látin er í ljós gleði heyrist hohoo en þegar hlegið er hahaa, hihy. Auvi, æ og æejej eru upphrópanir sern tengjast sársauka en um þögn er beðið með þei, þei. 

Sumt er hér tortryggilegt sem heimild um mál almennings á Íslandi á 17. öld, líklegra að þetta sýni málfar höfundar og vina hans í Kaupmannahöfn, þar sem ritið var samið. Þar á ég einkum við ,,jável”, og ”fuy”, sem ég veit ekki til að þekkist ella í íslensku, en er alkunna í dönsku. Einkum á ég þó erfitt með að trúa því að einhverjum hafi þótt sér ógnað með upphrópuninni ,,bíbí”, og erfitt að sjá hverju hún gæti tengst í íslenskum málvenjum, öðru en því að vera barnamál fyrir litla, aðlaðandi fugla. Skyldi ekki einhver hafa logið þessu að Runólfi, með formálanum: ,,Þetta var nú málvenja í minni sveit? Ekkert verður þó um það fullyrt eftir hálfa fjórðu öld, og skiljanlega hefur öll þessi mállýsing Runólfs verið erfitt frumkvöðulsverk. 
Fleira mætti telja, en greinilega koma framantaldar upphrópanir aðallega fyrir í þýddum ritum, auk málfræðiritgerðanna, sem kunna að vitna um notkun utan þýddra rita, daglegt mál. Nú þyrfti auðvitað að bera alla þessa textastaði saman við frumtexta, og álykta af því hvort þessum upphrópunum sé bara skilað beint frá frumtexta, en til þess gafst enginn tími, með tveggja vikna fyrirvara nú í kennslubyrjun. Verð ég að víkja því verkefni til mér lærðari manna á þessu sviði, auðvitað þarf nákvæma rannsókn á þessu ölIu. 
Nú kynni einhver að efa að þessi orð hafi skipt máli sem upphrópanir, fyrst þau komi ekki fyrir í Islendingasögum og Sturlungu, sem eru fullar af samtölum, líkt og skáldsögur nútímans. En smáumhugsun sýnir að þar er ólíku saman að jafna. Nútímaskáldsögur eru oft fullar af samtölum, sem sannarlega líkjast daglegu tali, og orka einkum til að varpa hversdagslegum blæ á persónur og umhverfi, eða skapa því staðbundinn svip. En samtöl í Islendingasögum eru þvert á móti líkt og í Eddukvæðum, ris texta, þar er sett á svið, þar sem átök brjótast út á einhvern hátt. Því eru tilsvör stutt og hnitmiðuð, það væri fráleitt að ímynda sér að þau samtöl séu einhver heimild um daglegt tal á miðöldum. 
Meginniðurstaðan verður sú, að svo sáralitlar heimildir sem til eru um upphrópanir í fornri íslensku, þá virðist íslenskar upphrópanir nútímans fremur vera undir latneskum áhrifum en bandarískum, og t.d. ,,hæ” og ,,vei” síst óþjóðlegri en ,,æ” og ,,ó”. 

Stafsetning er hér samræmd að nútímahætti. 

Heimildaskrá: 

Ásgeir Blöndal Magnússon: Íslensk orðsifjabók. Rvík 1989. 

Johan Fritzner: Ordbog over det gamle norske sprog. I—III, Kristiania 1886—1896. 

Guðrún Kvaran: Grammaticæ islandicæ rudimenta. Islensk málfræöibók frá 17. öld. Islenskt mál og almenn málfæði 15. bindi, 1993, bls. 123—139.

Ordbog over det norrøne prosasprog. Registre. Kbh. 1989. I. bind: a—bam. Kbh. 1995. 
- (Hér má finna tilvísanir í oråasafn Arnanefndar, en aðrar í Fritzner). 

Ólafr Þórðarson: Málhljóða- og málskrúðsrit. Grammatisk-retorisk athandling udgiven af Finnur Jónsson. København 1927. 

The so-called Second grammatical Treatise. Edition, Translation and Commentary by Fabrizio D. Raschellá. Firenze 1982.

Humtjöld falla

Húmtjöld hrynja

I. Lesendur þessa pistils muna vonandi upphaf Íslensks aðals, þar sem Þórbergur Þórðarson segir frá upphafi skáldferils síns. Kvöld eitt þegar hann var á leið heim til sín stansaði hann til að horfa á stjörnuhimininn, og varð þá gripinn undarlegri kennd, «eins og allt væri að gliðna í sundur eða renna saman við einhverja óendanlega volduga, ólýsanlega milda einingu, sem eins og væri ekkert, en fæli þó í sér ívist allra hluta.» Og þar með braust fram á varir hans fyrsta erindi af því sem hann fann að yrði langt kvæði:

Nátt-tjöldin hrynja. Himininn rökkvar.
Húmskuggum sveipast foldarbrá.
Kvöldblærinn kyssir láð og lá.
Ljóða hrannir við bakkann dökkva.
En moldin - hún dottar í drifhvítum hjúpi
og dreymir um vor.
Það haustar, og sólin er sigin að djúpi

Þá hljóp Þórbergur í herbergi sitt til að missa ekki andann, háttaði sig og lauk við kvæðið um nóttina, en hreinritaði það hvað eftir annað daginn eftir. «Aðeins fyrsta erindið var óbreytanlegt. Rödd hins eilífa verður aldrei endurbætt í hreinskrift.»
Þetta spurðist út um bæinn, og um vorið birtist kvæðið á forsíðu blaðsins Ísafoldar.
En síðar í bókinni (bls. 157) ber Stefán frá Hvítadal það upp á Þórberg að hann hafi stolið þessu frá Bjarna frá Vogi:

Þú ert svo smekklegur í þér að segja, að nátttjöldin hrynji. Bjarni sagði einhverntíma hér á árunum að náttjöldin falli, og það er miklu fegurra. Þessari hugmynd hefur þú stolið frá Bjarna, af því að þú átt enga skáldlega hugsjón sjálfur. Er það nokkur skáldskapur annað eins og þetta, að segja að nátttjöldin hrynji eins og gamall hundakofi!

Lesið hefi ég ljóðabækur Bjarna frá Vogi, og sýnist sem honum hafi verið flest betur gefið en skáldgáfa. Ekki fann ég þessa mynd í bókum hans. Enda svaraði Þórbergur Stefáni hátíðlega: ”Ég lýsi þig opinberan lygara frammi fyrir öllum, sem hér eru viðstaddir, að þessu, sem þú hefur sagt. Ég hef aldrei nokkurntíma séð né heyrt eina einustu línu eftir Bjarna frá Vogi , þar sem sagt er, að nátttjöldin falli.”
Ég á erfitt með að taka frásögnina um orðaskipti þeirra Þórbergs og Stefáns trúanlega, nema sem úthugsað níð af hálfu Stefáns. Þessi líking er hinsvegar víða annarsstaðar hjá miklu frægari skáldum.
Elsta dæmið sem ég hefi séð er hjá Guðný Jónsdóttir frá Klömbrum, í kvæðinu „Endurminningin er svo glögg” (fyrst prentað 1837, skv. Þjóðskáldin, bls. 73), en þar er talað um að sólin dragi fyrir tjöld sem varpi skuggum á grund:

þá ljómandi færði fagrahvel
forsælu misjöfn skuggatjöldin
yfir hvern blett og hvert eitt svið
hinum megin við sólskinið.

Þarna er þá skýjunum greinilega líkt við gluggatjöld. Í kvæðum Benedikts Gröndal fyrstu árin er nokkuð á annan tug dæma þessara mynda, á árunum 1853-60 margnotar hann mynd þar sem sjóndeildarhringurinn er sem tjaldaður salur, líkt og í fornsögum, einna skýrust er þessi mynd í Hugfró (1858):

meðan kvöld
hin undurbláu gullnu geislatjöld
ginndjúpu breiðir fram í næturheiði.
(Hugfró, bls. 222)

Svipuð mynd er hvað eftir annað hjá Steingrími Thorsteinssyni:

Dagur brýst senn inn í draumhimins tjöld,
Draumunum árgeislar hrinda,
(Þúsund ára sólhvörf 1874, bls. 15)

Hin heiðu kvöld,
Er himintjöld
Af norðurljósa leiftrum braga.
(Eg elska yður, þér Íslands fjöll, bls. 19)

Sól, þitt ljós þeim lifi' í minni,
Lýsi fram á hinsta kvöld;
Brátt er hvarfstu' að hvílu þinni
Heiðstirnd blika salar tjöld.
(Brúðkaupskvæði S. G. og S. E., bls. 323)

Síðar breytist þessi líking í ítarlegri mynd, sem mér finnst eðlilegra að túlka sem fortjöld í leikhúsi, hreyfing þeirra minnir norðurhjarabúa eðlilega á sveipandi hreyfingu norðurljósa, en þau sjást víst mest á norðurhjaranum, og ekki veit ég hvort þessi leiktjaldalíking er í erlendum kveðskap, en hjá Steingrími er hún í kvæði sem einmitt ber heiti af norðurljósum (birt eftir 1881):

Hve leiftrar þeim fylgjandi
Litbrigða fjöldinn,
Er blaktandi, bylgjandi
Breiða þau tjöldin,
Með ljósgullnum, heiðgrænum, lifrauðum röndum,
Svo létt sem þau bærð væru' af ósénum höndum!
Þau sveiflast í fellingum, svipa með logum,
(Norðurljósin, bls. 279)

Þórbergur sagði síðar um fyrsta kveðskap sinn (Edda, bls. 18), að þá hefði hann verið „á stefjagaleiðu Einars Benediktssonar”, þ.e. verið svo gegnsýrður af kvæðum Einars, að hann hefði ekki getað sýnt neitt sjálfstæði í ljóðagerð. Nú ber þetta kvæði Þórbergs augljóslega mikinn svip af kvæðum Einars, stuttar aðalsetningar í löngum erindum. Enda sagði hann sjálfur (Edda, bls. 21): „Áhrifin frá Einari Benediktssyni voru að sönnu öllum auðsæ.” Og einmitt hjá Einari er þessi mynd margendurtekin, ekki sjaldnar en tíu sinnum bara í fyrstu tveimur ljóðasöfnum hans, sem birtust 1897 og 1906. Myndin er aldrei eins ítarleg og í síðasta dæminu sem hér var tekið eftir Steingrími, né er þessi iðandi hreyfing, sem tengir leiksviðstjöld við norðurljós. Einar notar einfaldlega orðið „tjöld” með ýmiskonar ákvörðunarliðum til að tákna himin, -væntanlega skýjaðan- eins og Benedikt Gröndal, en mest ber hér á ljósbliki:

Hilling, lát speglast við himins tjöld
héraðið forna um sögunnar kvöld.
(Hilling, bls. 122)

og verk öIl Ieggjast í lífsins sjóð,
undir Ioftsalsins blikandi tjöldum.
(Við jarðarför Stgr.J., bls. 191)

í anda ég sé gegnum blámans tjöld,
finn strengina á heiðloftsins hörpum titra.
(Stjarnan, bls. 104)

Einnig eru himintjöld kennd við sól og mána:

Fyrir handan vetrarkvöldin
sé ég glampa á sólartjöldin.
(Þokusól, bls. 115)

en hér og þar lyftist ein harðfleyg önd
og hálsinn teygir svo langt sem hún eygist,
í gegnum sólroðans tindrandi tjöld.
(Í Slútnesi, bls.109)

óhappsvættar lofts í glugga
helráð brugga tungls við tjöld.
(Skýjafar, bls. 150)

- og við þoku:

Bak við þokubakka tjöldin
bíða í vestri rökkurkvöldin.
(Þokusól, bls. 114)

og loks kennir hann himintjöldin við húm:

Húmtjöldin falla og hylja allt liðið,
vér hringjum út öldina gömlu í kvöld.
(Aldamót, bls. 78)

Nú dýpkar og blánar hvolfsins hylur,
og húmblæjur kvika um geislanna brunn.
(Í Slútnesi, bls.109)

Stefán hefði mátt bæta því við skammir sínar við Þórberg, að 5. l. kvæðis hans minnir ansi mikið á "Sjálf moldin er hrein eins og mær við lín" í Norðurljósum Einars Benediktssonar, en "moldin - hún dottar" er svo skringilega smekklaust, að það er nánast eins og skopstæling á línu Einars. Og fleira minnir hér á hann. Nú má vera að Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti hafi ekki verið þeim Stefáni og Þórbergi ofarlega í huga þegar þeir rifust í Vaglaskógi, en orðalagið í kvæði Þórbergs minnir mest á línur í einu frægasta kvæði Sigurðar, Hrefnu. Og ljóðmyndin, sem þar birtist, er aftur mun líkari þeirri sem hér var höfð eftir Steingrími, en það sem við nú höfum séð eftir Einar Benediktsson. Blærinn á m.a. að færa Hrefnu kveðju mælanda, sem er nú fjarri henni, "þungt er það, Hrefna, að elska, vaka og bíða." En gegn þessum söknuði kemur önnur tilfinning, samkennd ljóðmælanda með heiminum. Því hefst þessi ljóðkafli á glæsilegri mynd, haf og himin sér mælandi sem leikhússsal, á hvelfingu hans eru dauf ljós (stjörnurnar), en norðurljósin eru sem leiksviðstjöld á hreyfingu:

Kvöldsett er löngu. Himins húmtjöld síga
hægt fyrir sviðið. Öldur þagna, hníga
Skuggarnir vefjast um brekkur bylgjudala,
blikstjörnur tindra á hvelfing Unnar sala.

Andvarinn líður, eins og torrek tóna,
titrandi þýður gegnum næturróna
skilur hann, blærinn, sköpin okkar þungu?
Skynjar hann braghreim sinnar eigin tungu?

Þessi kvæðishluti birtist fyrst árið 1905 (sbr. Ljóðasafn Sigurðar, bls. 21), og virðist líklegt að Sigurður hafi m.a. orðið „húmtjöld” frá kvæðum Einars Benediktssonar, sem hann orti lofgjörð um. Þessi mynd kemur fyrir hjá fleiri skáldum þessa tíma. Hulda dregur fram lit 1909 (í Á ferð, bls. 113):

það bliknuðu gullský og bjartur sær,
und blárökkvað húmtjald gekk dagur skær,
en þú stóðst og hreyfðir ei hendur.

Jónas Guðlaugsson notar myndina þráfaldlega nokkrum árum áður en Þórbergur, t.d. 1906: „Í rökkurkyrrð er húmskuggar himinhvelið tjalda” (Ljósleitin, Tvístirnið, bls. 41).
Einnig persónugerir hann húmið og gerir myrkrið að rekkjutjöldum himins (1909):

Hljótt er kvöld, um háa tinda
húmið breiðir rekkjutjöld;
bak við sæ og svarta rinda
sólarglóðin hinsta er föld.
(Fram hjá Fróðá, Dagsbrún, bls. 19)

Til sólarinnar segir hann:

Lát hylja húmsins tjöld
þinn hyr þú lýstir nóg!
(Bergnuminn, Dagsbrún, bls. 46)

Þótt hafið tjaldi með húmsins skuggum
þau horfa á áttina gegnum myrkrið,
(Sigling, Dagsbrún, bls. 90)

Það er ekki um að villast, að þessi ljóðmynd í upphafi kvæðis Þórbergs er af því tagi sem er ætlað að vera mjög áhrifamikil, en hefur verið notuð svo mjög af mörgum skáldum undanfarandi hálfa öld (-a.m.k.), að hún verður ekki kölluð annað en klisja. Hinsvegar er hún svo miklu minna á flugi nú orðið, að hún virðist ekki lengur eins slitin. En nú sjáum við hvers eðlis skáldlegur innblástur frá „rödd hins eilífa” er byrjanda í skáldskap. Skáldið er einfaldlega gagntekið af klisjum, sem það skilar frá sér í mun lakara formi en það meðtók þær. En mjór er mikils vísir, fáeinum árum síðar birtust fyrstu bækur Þórbergs, Hálfir skósólar, 1915 og Spaks manns spjarir, 1917, lítil kvæðakver, full af skopstælingum á kveðskap samtímans, einkum af væmnara tagi. Þau voru endurprentuð með viðaukum í Hvítir hrafnar, 1922, og enn í Eddu Þórbergs, 1941.

II
Víkjum nú aftur að húmtjöldum Einars Bendiktssonar. Eitt magnaðasta kvæði hans er Kvöld í Róm, sem fyrst birtist á árinu 1905. Þar sem kvæðið rifjar upp stórveldistíma Rómverja, þá ber myndmál þess einmitt svip af honum, nánar tiltekið er kvöldhimninum líkt við purpuraskikkju, svo sem Rómarkeisarar báru. Sú mynd minnir á húmtjöldin, sem fyrr var um rætt, og rammar inn Rómarsögu kvæðisins:

Kvöld með rauðri skikkju og bláum faldi. (1. erindi)

Lýsist kvöldsins rauða skikkja - og hrynur. (6. erindi).

Innan þessa ramma rekur ljóðmælandi í megindráttum þróun og hrun Rómarríkis, og dregur síðan lærdóma af þeirri sögu. Þær vangaveltur ná yfir allan seinni helming kvæðisins, og meginspurningin er: Var þetta allt til einskis, öll þessi list og snilld, sem fór forgörðum? Og svarið er þetta ógleymanlega erindi:

Mást skal lína og litur, steinn skal eyðast,
listarneistinn í þeim skal ei deyðast.
Perlan ódauðlega í hugans hafi
hefjast skal af rústum þjóða og landa.
Komi hel og kasti mold og grafi,
kvistist lífsins tré á dauðans arin,
sökkvi jarðarknörr í myrkva marinn,
myndasmíðar andans skulu standa.

Mér sýnist að þetta sé hughyggja að hætti Hegels, fremur en Platons, ekki er um að ræða eilífar hugmyndir, sem ævinlega móti hverfula hluti að meira eða minna leyti, heldur leiða hverfulir sigurvinningar mannsandans til hægfara þróunar mannkyns, að andlegri fullkomnun.
Þetta kvæði hefur marga hrifið, og meðal þeirra Jón Helgason. Því eitt frægasta kvæði hans, Í Árnasafni, virðist beinlínis ort gegn þessu kvæði Einars. Það er að vísu ósannanlegt, Jón líkir ekki eftir kvæði Einars, hvorki í bragarhætti, myndmáli né neinu öðru en yrkisefni í meginatriðum. Því eins og allir lesendur þessa pistils vita, fjallar kvæði Jóns um verk hans og annarra í Árnasafni, að bjarga fornum menningarverðmætum frá glötun. Þessi fornu íslensku rit eru á sinn hátt veðruð, ekki síður en myndastyttur og byggingar Rómaveldis. En kvæði Jóns lýkur á niðurstöðu, sem er fullkomlega andstæð Einars; allt hlýtur að tortímast að lokum, hvernig sem menn reyna að bjarga myndasmíðum andans frá glötun:

Bókfellið velkist, og stafirnir fyrnast og fúna,
fellur í gleymsku það orð sem er lifandi núna,
legsteinninn springur, og letur hans máist í vindum,
losnar og raknar sá hnútur sem traustast vér bindum.
(Kvæðabók, bls. 13)

Eitt af þvi sem mest magnar kvæði Jóns Helgasonar er undirstraumur í myndmáli kvæðisins, en sameiginlegt ljóðmyndunum er einmitt margskonar straumur:

heyrði ég þungann í aldanna sígandi straumi. (1. erindi)

við eyru mér ólguðu og sungu
uppsprettulindir og niðandi vötn minnar tungu. (2. erindi)

glymjandi strætisins frábrugðin suðinu í ánum, (6. erindi)

Vatnsfallið streymir af ókunnum öræfaleiðum,
andblærinn líður um túnið af fjarlægum heiðum, (7. erindi)

Stundum var líkast sem brimgnýr er þaut mér í blóði,
bergmál af horfinna kynslóða sögum og ljóði, (8. erindi)

Hvíslar mér jafnan á orðlausu máli hér inni
eyðingin hljóða, (9. erindi)

Straumur bíla og fólks eftir götu (Fiolstræde), árniður, vindur, brimgnýr, þetta er ýmiskonar útfærsla á frægu orðtaki: „Pan rhea”, allt fram streymir. Og þetta verður eðlilegur grundvöllur líkinganna: uppsprettulindir málsins, straumur tímans. Og allur þessi óstöðvandi og margvíslegi straumur kvæðið í gegn undirbýr og styrkir ályktun þess, að eyðingin hljóða sé einnig óstöðvandi straumur.
Við höfum nú hugað að ýmiskonar innblæstri skálda útfrá nátthimninum. Síðasta dæmið virðst mér þó með þeim glæsilegri, því það sýnir svo sjálfstæð viðbrögð.
Tjaldið fellur.

Tilvitnuð rit:

Benedikt Gröndal: Ritsafn I. Reykjavík 1948.
Davíð Stefánsson: Að norðan. Ljóðasafn I-III. Reykjavík 1965.
Einar Benediktsson: Kvæðabók. Reykjavík 1994.
Hulda: Kvæði. Reykjavík 1909.
Jónas Guðlaugsson og Sigurður Sigurðarsson: Tvístirnið. Reykjavík 1906.
Jónas Guðlaugsson: Dagsbrún. Reykjavík 1909.
Jón Helgason: Kvæðabók. Reykjavík 1986.
Sigurður Sigurðarson: Ljóðasafn. Reykjavík 1978.
Steingrímur Thorsteinsson: Ljóðmæli. 4. útgáfa, Reykjavík 1925 (borin saman við 1. útgáfu, Reykjavík 1881).
Þjóðskáldin. Úrval úr bókmenntum 19. aldar. Reykjavík 1992.
Þórbergur Þórðarson: Edda. 2. útgáfa aukin, Reykjavík 1975.
Þórbergur Þórðarson: Íslenskur aðall, 3. pr. Reykjavík 1971.

Ég þakka Kjartani Ottóssyni prófessor við Oslóarháskóla gagnlegar ábendingar. Þetta var sett í afmælisrit Jonnu Louis Jensen sextugrar, Freyjas psalter 1997, en fyrri hlutinn tekinn upp í rit mitt Seiðblátt hafið, 2006.

Modernismarit Astraðs

Hugtakið módernismi
Ástráður Eysteinsson: The Concept of Modernism. Cornell University Press, Ithaca &London 1990, 267 bls.

I.
Þessi bók er doktorsrit Ástráðs Eysteinssonar sem hann varði við Iowa háskóla árið l987. Það er á ensku, en hér verða tilvitnanir þýddar.
Svo sem titillinn gefur til kynna er þetta rit Astráðs um módernisma fyrst og fremst umfjöllun um mismunandi skilgreiningar manna á því hugtaki – sem stundum gekk undir öðrum nöfnum framanaf (sjá bls. 3). Enda undirstrikar Ástráður í formála, að þetta sé hvorki saga módernismans né túlkun á völdum módernum verkum, heldur reki einkum hvernig þetta hugtak hafi mótast. Þetta rit er því það sem á erlendum málum hefur verið kallað “metakrítík”, umfjöllun um bókmenntafræði, fremur en um bókmenntir.
Ritið skiptist í fimm katla. Fyrsti kafli fjallar um tilurð skilgreininga á módernisma, annar kafli um módernisma í bókmenntasögunni, þriðji kafli um módernisma frá sjónarhóli póstmódernisma, fjórði kafli um framúrstefnu og módernisma, og sá fimmti um raunsæisstefnu, módernisma og ,,fagurfræði rofs og dvalar (Aesthetics of Interruption). Þetta er auðvitað gagnrýnin umfjöllun, Ástráður ber hinar ýmsu kenningar saman innan hvers kafla, rökræðir þær og sýnir fram á mótsagnir og aðra veika bletti — eða sterka. Og þá vísar hann til módernra bókmenntaverka sem prófsteins á það hvort þessar kenningar um módemisma standist. Vissulega eru það ekki mörg verk, sem hann þannig notar, en það eru nokkur hin frægustu módernra skáldverka, og þá alveg óumdeilanleg sem slík; Ulysses eftir James Joyce, Eyðilandið eftir Eliot, skáldsögur Kafka, o.fl. Auk þess fjallar hann nokkuð um verk sem eru á mörkunum, umdeilt hvort þau eru módern eða ekki. Annars stendur Ástráður við formála sinn, ritið er það fjarri bókmenntaverkum, svo sértæk umfjöllun, að vart birtist greinarmunur á módernum einkennum mismunandi bókmenntagreina; ljóða, sagna og leikrita, hvað þá einstakra höfunda. Sáralítið kemur fram um mun á hreyfingum módernista svosem fútúristum, expressjónistum og surrealistum. Og þá hlýtur Astráður einnig að sniðganga fræðirit sem ganga svo nærri bókmenntatextunum sjálfum. Þannig verður kaflinn um módernisma í bókmenntasögunni mjög sértækur, framanaf nánast heimspekilegar vangaveltur uppúr Nietzsche um það að hve miklu leyti hægt sé að rísa gegn hefð, hvernig hefðin móti sjálfa uppreisnina sem gerð er gegn henni, en 1. kafla lauk á þeirri ályktun, að sameiginlegt hinum ýmsu skilgreiningum á módernisma sé helst að hann rísi gegn hefð. Hér sakna ég einna mest jarðsambandsins, ég held að það sé ekki hægt að gera grein fyrir módernisma í bókmenntasögunni nema út frá könnun á bókmenntatextum. T.d. rekur Ástráður kenningar Eliots um hefð og uppreisn gegn henni, og bendir á að samkvæmt þeim væri ekki unnt að gera grein fyrir Eyðilandi Eliots sjálfs. Hér kemur a.n.1. fram, að módernisminn hófst í frönskum Ijóðum um 1870, en ekki hitt, sem ég hefi látið sannfærast um, að rætur hans sé að miklu leyti að finna í nostri þarlendra skálda á við mál, myndir, hrynjandi o.fl. í Ijóðum — þ.e. sýmbólisminn, táknsæisstefnan.
Í framhaldi af ofangreindum vangaveltum ræðir Ástráður kenningar um hvernig bókmenntasaga eigi að vera, hvað eigi að leggja henni til grundvallar. Hann rekur viðvaranir við því að klessa nútímahugmyndum á gömul verk, rifin úr samhengi, og viðvaranir Tynjanov við því að skrifa bara ,,sögu hershöfðingjanna”, helstu skálda. Wellek og Warren kvörtuðu undan því að bókmenntasaga væri ýmist greinaflokkur um einstök skáld í sögulegri röð, ellegar menningarsaga, sem gerði ekki sérstaka grein fyrir bókmenntum. Þeir lögðu því til að tímabil bókmenntasögu (svosem rómantík) yrðu skilgreind eingöngu frá bókmenntalegum einkennum. En það finnst Ástráði (bls. 66) of langt gengið, og vísar til þess sem Tynjanov segir, að það sé sögulega ákvarðað og breytilegt hvað kallist bókmenntir á hverjum tíma. Breytingar í bókmenntasögunni stafi því af þjóðfélagslegum öflum.
Allt er þetta satt og rétt, en þó verð ég að taka undir með Wellek og Warren. Þegar rannsaka skal eitthvert skeið bókmenntasögu, t.d. með samanburði við annað, verður að ganga út frá því hvaða bókmenntaverk nutu mestrar virðingar þá. Gjarnan má bera þau saman við samtímaverk sem þá voru lítils metin, en síðar mikils, og sá samanburður hlýtur að byggjast á bókmenntalegum sérkennum. Síðan má spyrja til hverra þau hafi höfðað á hverjum tíma, og hvers vegna. Þetta hefur iðulega verið gert með góðum árangri, ég nefni bara rit Ian Watt um upphaf skáldsagnagerðar (The Rise of the Novel) og rit Danans Svend Møller Kristensen, t.d. um rómantik og eftirfarandi skeið danskra bókmennta (Digteren og samfundet), en þar skýrir hann á sannfærandi skammvinnan blóma og langa hnignun rómantíkur í Danmörku framan af 19. öld.
Fimmti kaflinn er hvað þetta varðar jarðbundnari en hinir, því þar er módernisminn borinn saman við realismann, en það fyrirbæri væri betur nefnt skáldsagnahefð, og svo geri ég hér. Alveg er ég sammála Ástráði (bls. 191-192) um að rekja hana frá 18. öld, að fyrirmynd Ians Watts. Ástráður dregur fram einkennni stefnunnar svosem það að líkja eftir umhverfinu, jafnvel eru ýmis atriði í skáldsögu, sem ekki hafa hlutverk í framrás hennar, en gera umhverfið nærtækt. Dæmigerð atriði koma í stað hetjulegra, o.fl. rekur hann (bls. 194) eftir Peter Demetz. Ég held að í þessari bókmenntahefð felist þá fyrst og fremst fylgispekt við þá framsetningu sem er svo venjuleg á ritunartíma að hún þykir sjálfsögð. En einkum leggur Ástráður (bls. 196) áherslu á eitt einkenni, sem hafi orðið svo áhrifaríkt aö núorðið nægi það til að saga teljist til skáldsagnahefðarinnar; en það er að málið sé fyrst og fremst notað sem miðill. En einmitt þar greinist módemisminn frá þeirri hefð, í honum stendur málið sjálft í sviðsljósi, framsetningin er rofin. Út frá því rekur Ástráður (bls. 208—209) þá kenningu Jamesons að módern verk beri að skoða sem umbreytt hefðarverk eða höfnuð (,,modernist works are cancelled realistic ones”), þ.e. að módern verk séu jafnan lesin út frá viðmiðunum skáldsagnahefðarinnar, frekar en eigin hefðar. Enda sé það fráleitt, sem ýmsir bókmenntafræðingar hafa haldið fram, að módernisminn sé ,,list okkar tíma, drottni á 20. öld, o.fl. í þeim dúr. Ástráður sýnir fram á, að auðvitað hafi módernisminn alla tíð verið andstöðustraumur, en skáldsagnahefðin drottnað. og geri það enn, a.m.k. ef spurt er um vinsældir bóka og væntingar lesenda.
II.
Hér eru raktar ýmsar lífseigar kenningar, t.d. í l. kafla sú frá Georg Lukàcs 1934, aö expressjónismi einkennist af sértækum formum, ósögulegum, óröklegum og goðsögukenndum; en þannig verði hann eðlisskyldur fasismanum. Oft hefur sú ásökun verið endurtekin síðan gegn módernismanum almennt. En sagan sýnir að þetta er einfeldnisleg nauðhyggja, svo sem Ástráður rekur. Ýmsir módemistar voru vissulega fasistar eða mjög hægrisinnaðir, t.d. ítalskir fútúristar, Ezra Pound og Gottfried Benn. En aðrir voru eindregnir byltingarsinnar, t.d. surrealistar og rússneskir fútúristar, höfðu þeir þó svipaða afstöðu til listsköpunar og hinir.
Ýmist var módernisminn sakaður um formdýrkun eöa formleysu, jafnvel komu báðar ásakanir frá sama aðilja, t.d. Lukàcs (sjá bls. l 5— l 6). Þessa mótsögn, skýrir Ástráður svo að í fyrra tilvikinu fjalli Lukács um ljóð expressjónista, en f hinu síðara um skáldsögur (m.a. Kafka), og segi að þær endurspegli aðeins sundrað yfirborð auðvaldsþjóðfélagsins, en sýni ekki dýpra samhengi, eins og Balzac hafi gert, öðrum rithöfundum til fyrirmyndar. En á móti þessu sögðu aðrir, að það væri að fegra auðvaldsþjóðfélagið að sýna það í samræmdum, heilsteyptum verkum.
Í 4. k. rekur Ástráður kenningar ýmissa sem hafa viljað greina framúrstefnu frá módernisma þannig, að hreyfingar svosem fútúristar, surrealistar, o.s.frv. hafi stundað tilraunir og þá framúrstefnu og ráðist gegn hefð, en einstök nafnkunn skáld svosem Joyce og Eliot hafi verið módernistar og varðveitt menningarhefðina - að vísu endurtúlkaða og fellda inn í brotakennd verk. Ástráður fer létt með að hrekja þessar kenningar, en niðurstaða hans er sú, að framúrstefna sé ekki bundin við tiltekið tímaskeið einsog módernismi. Rangt sé þó að greina skýrt á milli, því þá verði hvort hugtakið um sig fátæklegra en efni standi til. En hér finnst mér vanta umræður um það hvort verk frá blómaskeiði módernismans geti verið framúrstefna en ekki módernt. Og einmitt það sýnist mér gilda um Dada, sem Astráður segir (bls. 157) réttilega að hafi veriö miklu neikvæðari en hinar hreyfingarnar. Spurningin er hvort þessi ögrunarverk geti kallast bókmenntir. Það er a.m.k. hæpið um runur dadaista af meiningarlausum hljóðum og gerviorðum. Íslenskt skáld af þessu tagi er Bjarni Bernharður, a.m.k. í bókinni Stjörnuhrös (1986). Annað tilraunaverk, sem með engu móti yrði talið módernt, er Án titils eftir Einar Guðmundsson (1978), en þar færði hann dagbók eitt ár, e.k. rannsókn á hversdagsleikanum. Ennfremur má telja M (1986) eftir sama, en þar eru orðasambönd endurtekin vélrænt með tilbrigðum. Og skáldverk Gertrude Stein sýnast mér fremur eiga að flokkast sem framúrstefna en sem módernismi, því það nægir ekki að risið sé gegn miðlunarhlutverki málsins. Astráður telur að þau hafi verið vanmetin sem módem skáldverk. En skýring þess er að mínum dómi nærtæk, einnig í umfjöllun Ástráðs (bls. 155 o.áfr.). Stein beitti endurtekningum ótæpilega sem stílbragði, og fyrir bragðið getur það orðið nokkuð þungbær þraut að sitja yfir ritum hennar (en það gerði ég einu sinni að ráði Ástráðs).
Þriðji kafli er mikilvægur við afmörkun módernisma, því þar fer Ástráöur í ýmsar kenningar um að módernisminn hafi runnið skeið sitt til enda, og í staðinn sé kominn póstmódernismi. Breytingamar ættu þá að sýna hvað fólst í módernisma. Hér koma kenningar af ýmsu tagi. M.a. að póstmódernismi hafi verið til samtímis módernisma, og settar eru upp andstæður svo sem að módemismi einkennist af formhyggju, marksækni og skipulagningu, jafnvel sé frásögn sett á oddinn! En póstmódernismi snúist gegn formhyggju og frásögn, með leik, stjórnleysi og sundrun (bls. 128—130). Aðrir segja að módern verk séu einskonar gestaþrautir, sem að lokum eigi að ganga upp röklega, en í stað þess komi póstmódernisminn með óvissar tilvísanir til umhverfisins (bls. 132). Svona kenningar sýna bara þekkingarleysi á módernisma, honum eru eignuð einkenni skáldsagnahefðarinnar sem hann reis gegn. En hvað þá um hina kenninguna, að póstmódernismi sé samruni módernisma og realisma? Einnig úr þeirri blöðru tekur Ástráöur mikið loft með því að sýna að skáldsagnahefð (,,realismi”) hafi jafnan ríkt þegar mest bar á módernisma. Eftir stendur helst það, að póstmódernismi greinist frá módernisma við sambreysking margskonar stílherma, sem settar eru saman á háðskan hátt. Þetta síðasttalda ætti að koma frá viðtakendum, ekki síður en frá höfundi. En að því frátöldu sýnist mér þá að Íslendingar eigi sannkallað musteri póstmódemismans í Háteigskirkju. Og hið dýrlega verk Italo Calvino Ef ferðamaður um vetrarnótt væri gott dæmi póstmódemisma, en t.d. skáldsögur Umberto Eco rúmast mætavel innan skáldsagnahefðarinnar.
Hér er ekki rúm til að rekja fleiri dæmi, enda er ritið efnisríkt, og verður að fara hratt yfir sögu. Ekki hefi ég getað farið í saumana á mörgu. En það sem ég þekki (t. d. Adorno og Lukács) sýnist mér Ástráður gera sanngjarna grein fyrir kenningum þessum og gagnrýna þær af samkvæmni. Fáar villur rakst ég á, helst í upphafi 5. k. þar sem segir að raunsæisstefna verði drottnandi í Austur-Evrópu. Við það ætti tímaákvörðunin sem á eftir kemur; ,,since mid-forties, en hún er þá sett á Sovétríkin, virki sósíalrealismans, og þá væri réttara að segja: seint á þriðja áratuginum, ,,late twenties”. Því sovésk stjórnvöld fóru að fyrirskipa skáldum þessa stefnu árið 1928, þótt nafnið yrði víst til síðar, og fyrirmælin væru oft ítrekuð (sjá bók mína Rauðu pennarnir, bls. 17 o.áfr.).
III.
Lokaundirkaflinn ber fyrirsögnina: Niðurstaða. En höfundur tekur óðar fram að þar vilji hann ekki draga saman stuttorða niðurstöðu af öllum sínum rökræðum, því þarmeð sé lítið úr þeim gert. Þessu er ég öldungis ósammála, og reyndar álít ég að ágætar greinar Ástráðs hafi haft mun minni áhrif en efni stóðu til, vegna þess að hann dró ekki helstu niðurstöður saman í lokin. Það er nauðsynlegt í lok langra og víðtækra greina sem Fyrsta nútímaskáldsagan og módernisminn (í Skírni 1988, 44 bls.) eða Hvað er póstmódernismi (TMM 1988, 30 bls., byggð a.n. l. á 3. k. þessa rits). Ef höfundur sjálfur dregur ekki ályktun af umfjöllun sinni og rökum um efni sem hann hefur lengi rannsakað, hvernig verður þá ætlast til að lesendur geri það? En þessi hálfgildings niðurstöðukafli dregur reyndar fram meginatriði (bls. 222); að módernisminn beri í sér frumatriði andstöðumenningar; hneigist til að afneita þeirri menningarreynslu sem mest ber á í borgaralegu félagi, helstu boðleiðir þess dragi hann í efa og reyni að trufla þær1. Innan á kápu er örstutt samantekt, og þar segir að á sviði módernismans birtist kreppa einstaklings og tilvísunar, módernisminn sé ekki fyrst og fremst tiltekið form, heldur truflun á umræðu — þar birtist þá möguleikinn á annars konar nútíma, sem sýni neikvæðar hliðar á félagslegri og mállegri reynslu af vestrænni menningu2. Víðar má finna meginatriði ályktana, t.d. (bls. 210) að módern verk séu iðulega af samklippingstagi, virðist vera samtíningur ýmisskonar textabúta fremur en samræmd heild, og að sundurleysi sé megineinkenni þeirra (bls. 1 26— l 27)
Væntanlega myndi Ástráður orða hugs sína nákvæmar og betur á íslensku en ég nú hefi gert. En annars tek ég heilshugar undir þessa niðurstöðu um módernismann.
Ritið er það umfangsmikið, að auðskilið er að doktorsrit héldi sig innan þessara marka. En óneitanlega finnst mér auðteknari og gagnlegri venjuleg söguleg framsetning, þar sem gengið er út frá helstu módernu skáldverkum, og kenningamar prófaðar á því hve vel þær lýsi þessum verkum, og hvernig þau greinist frá öðrum. Ég er því meira fyrir rit eins og t.d. Die Struktur der modernen Lyrik eftir Hugo Friedrich (til á dönsku), safnritið Expressionismus als Literatur (Bern 1969), og Saga surrealismans eftir Maurice Nadeau. Nýútkomin bók mín um módernismann í íslenskum bókmenntum, Kóralforspil hafsins, er sögulegt yfirlit, og tengist því þessum ritum frekar en bók Ástráðs. Nýlegt, stórt safnrit, Les avant-gardes littéraires au XXe siècle (Budapest 1984, 1200 bls.), tekur helstu móderna strauma fyrir í tveimur bindum. Hið fyrra setur efnið fram bókmennta- sögulega, en hið seinna fræðilega, og fer þá rækilega í þau einkenni á ljóðum, sögum o.fl. sem eru sameiginleg, og hvað aðgreini hinar ýmsu stefnur. Það er einkennandi fyrir bók Ástráðs að fjalla ekki um þessi eða þvílík bókmenntasögurit, heldur eingöngu um sértækari umfjöllun. Og slík umfjöllun bregst þegar kemur að því að ákvarða einstök verk, sem margvíslega hafa verið túlkuð. Õðru vísi gert ég varla skýrt að Ástráður tekur þar ekki af skarið, svo ótrauður sem hann annars er að taka afstöðu. Hér er einkum um að ræða skáldsögur Thomasar Manns og Flauberts. Skáldsaga Manns, Doktor Faustus, er hér til umræðu sem umfjöllun um módernisma, en ekki dæmi um hann. En háð (írónía) á að greina Töfrafjall Manns frá skáldsagnahefðinni, m. a. að dómi Manns sjálfs, sem þóttist eiga það sammerkt við James Joyce. Háð er bara allt of algengt fyrirbæri til þess að teljast sérkenni bókmenntastefnu. Það var t.d. áberandi í rómantík á öndverðri 19. öld. Og síst eru önnur einkenni sem Ástráður telur (bls. l89) sterkari tengsl við módernisma; svo sem margvísleg beiting á sögutíma, og að sjúkdómar hafì táknræna merkingu, en Töfrafjallið gerist á heilsuhæli. Það er algengt í skáldsagnahefðinni, að saga gerist í slíkum smáheimi utan samfélagsins (gjarnan á lystiskipi, eða sumardvalarstað, o.s.frv.), einnig hitt, að sviplítil söguhetja standi í togstreitu milli fulltrúa andstæðra hugmyndakerfa (það einkenndi t.d. sögulegar skáldsögur Walter Scott í byrjun 19. aldar, svo sem Lukács hefur rakið). Enda ályktar Ástráður að lokum (bls. 190) að sagan standi nær hversdagslegu umhverfi eða regluböndum (,,our normative world“) en kastalahæð Kafka (í Höllinni). Ástráður rekur ennfremur að Frú Bovary eftìr Flaubert (1856) hafi bæði verið kölluð ein helsta skáldsaga 19. aldar skv. hefðinni (,,realist), og brautryðjandi módernismans í skáldsagnagerð. Hér þyrfti augljóslega aö reyna að skera úr, með því að bera saman þau rök sem færð hafa verið fyrir andstæðum túlkunum. En Ástráður lætur sér nægja að tilfæra þessar skoðanir sem dæmi um sjálfstæði túlkunaraðferða. Eìnnig rekur hann þau rök fyrir þeirri síðartöldu; að sagan sé módern, að hún sé skrifuð í stíl sem reyni að fjarlægja hana mjög umfjöllunarefni hennar. Það er að vísu áberandi í módernum verkum, en þó eru þetta öldungis ónóg rök. Módernistar mega margt hafa sótt til Flaubert, en eins og J. Culler rekur í þeirri góðu bók sem Ástráður vitnar til (Flauhert. The Uses of Uncertainly, Cornell 1985, bls. 134—135), stendur hann ótvírætt innan skáldsagnahefðarinnar gegn módernismanum. Hann hefur skýrt mótaðar persónur, umhverfislýsingar og söguþráð. Það er því í meira lagi villandi af Ástráði (bls. 1 90— 191) að segja Culler ganga manna lengst í að túlka Flaubert sem módernista.3
IV.
Það er ekki hægt að gína yfir öllu í einni bók, þessi heldur sig á eðlilegan hátt innan sinna tilgreindu marka. Ennfremur er framantalin jarðbundnari umfjöllun aðgengileg á söfnum. Þá er þeim mun meiri ástæöa til að fagna bók Ástráðs. Gildi hennar finnst mér mest vera í gagnrýninni, að sýna fram á mótsagnir og firrur í þeim villta gróðri allskonar kenninga um módernismann, sem rísa upp aftur og aftur. Þær berast stöðugt til Íslands í einni eða annarri mynd, og því vil ég nú endurtaka áskorun mína til höfundar, sem ég bar fram við hann fyrir tveimur árum, að hann komi bókinni út á íslensku. Vissulega hlyti bókin að breytast eitthvað við það að beinast til íslensks almennings í stað bandarískra háskólamanna í bókmenntafræði. En þar með er bara sagt, að hún gæfi íslenskum almenningi þá kost á að nálgast téða háskólamenn á því sviði. Slík umfjöllun á íslensku auðgar íslenskt mál og menningu. Einhverjir munu telja að þeir sem áhuga hafi á slíkri bókmenntafræði geti vel lesið hana á ensku. En það hefur sýnt sig í vetur, að þeir sem helst hafa vitnað til þessarar bókar, hafa greinilega ekki lesið hana (þar á ég við ritdómara um fyrrnefnda bók mína, Kóralforspil hafsins, en það voru Ingi Bogi Bogason, Gísli Sigurðsson og Kolla Bergmáls).
Í þessari umfjöllun hefi ég ekki fylgt kaflaröð bókarinnar, og ég held að það yrði til bóta að breyta henni, setja fyrri hluta 5. kafla einna fremst, því skáldsagnahefðin er eðlileg viðmiðun ritið í gegn. Bagalegt er að blaðsíðutal skuli vanta í millivísunum.
Þessi ritdómur kemur með tveggja ára seinkun, sem ber að harma, en þar er ekki við mig að sakast. Ég fékk hann að verkefni fjanúar sl.

1. …one of my chief aims (…) is to show how modernism contains the rudiments of an adversary culture, how it tends to negate the cultural experience most readily furthered by bourgois society, how it problematizes and seeks to interrupt the predominant modes of communication in this society.”
2. Enacting a crisis of subject and reference, modernism is not so much a form of discourse (…) as its interruption – a possible “other” modernity that reveals critical aspects of our social and linguistic experience in Western culture.
3. 3. Culler, author of perhaps the most radical reading of Flaubert as a modernist.
TMM 1993:2

Finngalknað

Finngálknað

Lesendur þessa pistils munu kannast við furðuskepnur svo sem skuggabaldur, skoffín og finngálkn. En um það síðasttalda segir m.a. í Þjóðsögum Jóns Árnason- ar(I, 611):

Finngálkn er það dýr kallað sem köttur og tófa geta saman. Er það grimmt mjög og öllum vargi skaðlegri fyrir sauðfé manna og skotharðast allra dýra. Vinnur engin kúla á finngálknið og verður það ekki skotið nema með silfurhnapp eða silfurkúlu. Það er og styggt mjög og ákaflega frátt á fæti.
I Islenskri orðsifjabók eru auk orðmyndarinnar finngálkn taldar upp myndirnar: ”finngálkan finngálpn, finngalprt og fingálp(n) [...] einhverskonar töfra- og furðuskepna, mannhestur eða elgfróði”. Þar eru raktar nokkrar kenningar um uppruna orðsins, og ályktað: ”Allt vafasamt. Uppruni öldungis óviss”. En finngálkns er einnig getið í íslenskum fornsögum, m.a. í Örvar-Oddssögu (19. - 20. k.) En hún er svo víða til, að hér skal vitnað i torgætari texta, riddarasöguna Blómsturvallasögu frá 14. öld. Lýsingin er svipuð þeirri í Orvar-Oddssögu, en yfirgengilegri (bls. 17)1:

... en er þeir voru komnir á skóginn, komu í móti þeim tvö dýr rennileg og furðulega mikil, er fingálptar heita. Þau eru með þess háttar sköpun, að þau hafa manns hendur og mannshöfuð og alla mannssköpun ofan að lendum, en brjóst og klær sem á óargadýrum. Tvo spena höfðu þau sem konubrjóst væri. Aftari hlutur dýrsins er bæði digur og langur, og lendar sem á hesti og hófa á á aftari fótum, hala langan og digran og klepp á endanum. Þeirra ásjóna var hræðileg, tennur mjög stórar, ginið mikið úr máta, úr augunum þótti sem eldur brynni. Karldýrið hafði skegg sítt og svart sem bik, þau höfðu skjöldu og sverð.
I Styrbjarnar þætti Svíakappa segir frá undri miklu (bls. 71), ”að í díki því er um var gert borgina kom upp finngálkn mikið og kvað vísu. En í ritinu Stjörnumörk, sem útgefandinn Konráð Gíslason (bls. viii) segir vera frá miðri 14. öld er orðið haft um stjörnumerkið sem nú er kallað Bogmaðurinn (bls. 478):

Capricornus stendur í sunnanverðum zodiaco þar er hann kemur við veturhring nær sagittario (finngálkn) og aquila (ara).
Enda er að fornt, að sýna stjörnumerkið bogmanninn sem kentár, þ. e. maður niður að mitti, en þá tekur við hestsskrokkur, mannsbolurlnn í stað háls hestsins. Hér fylgir með mynd úr tímatalsrriti í Árnasafni frá því um 1200. Það kann að vera gert á Islandi, segir útgefandinn, Jonna Louis-Jensen. Eins og hún bendir á (Faksimile af de islandske Physiologus-fragmenter bls. 62), hefur skepnan klær, ólíkt hestmennum Grikklands. Satt að segja sýnist mér vera ljónsskrokkur undir manninum, en hann í kyrtli sem hólkast upp á mótunum - nema það eigi að vera húðfellingar. Með myndinni fellum við skrímslatal þetta. Af því má sjá að menn hafa gert sér nokkuð mismunandi hugmyndir um finngálkn, en sameiginlegt er, að þetta sé samsett furðuskepna, að hálfu maður en að hálfu dýr. Um það eru og fleiri orð, svo sem áður var rakið.

Skáldskaparfræði
Sum þeirra merkisrita, sem Islendingar sömdu á miðöldum, eru lítt þekkt, jafnvel á Islandi, enda hafa þau sjaldan eða aldrei verið fáanleg á prenti. Það á við um mörg forn kirkjuleg rit, en einnig um fræðirit. Þau eru þó mörg og fjölskrúðug. Sum eru þýdd, svo sem þau er vitnað var í hér að framan, dýrafræði og alfræði, þ. á m. landafræði. Önnur eru frumsamin af Islendingum, og er þar frægust Snorra-Edda, sem gerir grein fyrir goðafræði og bragfræði fornri. Henni fylgja oft í handritum fjórar málfræðiritgerðir. Sú fyrsta er eldri en Edda, talin vera frá miðri 12. öld eða skömmu síðar, stórmerkileg greinargerð fyrir íslenskri tungu á þeim tíma. En hér ska1 vikið að þriðju málfræðiritgerðinni, þ. e. Málskrúðsfræði eftir Ölaf Þórðarson Hvítaskáld (d. 1259), bróðurson Snorra Sturlusonar. Hún byggist á erlendum ritum en jafnframt á skólahaldi Ölafs í Stafaholti um miðja 13. öld. Ritið fjallar framanaf um íslenska tungu, en fer síðan út í stílfræði. Og þar sem fjallað er um stílgalla, kemur m.a. fyrsta sinni fram mér vitanlega orðið sem er fyrirsögn þessarar greinar (bls. 80):

Sá löstur heyrir og cacenphaton, er vér köllum nykrað eða finngálknað, og verður það mest í nýgörvingum sem hér:

Hringtælir gaf hálu
hlýrsólar mér dýra
oss kom hrund til handa
hræpolls drifin golli
sút þá er Herjans hattar.

Hér er öxin kölluð í öðrum helmingi tröllkona skjaldar eða valkyrja, en í öðrum helmingi sút hjálmsins, og er þar svo skipt líkneskjum á hinum sama hlut, sem nykrinn skiptist á margar leiðir.
Hér er greinilega vísað til þess sem Snorri Sturluson segir um nýgervingar í Eddu sinni (bls. 282, í þeirri gerð, Trektarbók heitir þetta nýgjörningar):

Það eru nýgjörningar að kalla sverðið orm og kenna rétt, en slíðrirnar götur hans, en fetlana og umgjörð hams hans. Það heldur til ormsins náttúru að hann skríður úr hamsi, svo að hann skríður mjög til vatns. Hér er svo sett nýgjörning, að hann fer leita blóðs bekkjar að, þá er hann skríður hugar stigu, það eru brjóst manna. Þá þykja nýgjörningar vel kveðnar, ef það mál, er upp er tekið, haldi um alla vísulengd, svo sem [þ.e.: en ef] sverð sé ormur kallaður, fiskur eða võndur eða annan veg breytt, það ka1la menn nykrað, og þykir það spilla.

Framangreind klausa úr Málskrúðsfræði Ólafs er eina dæmið sem ég ekki úr fornu má1i um orðið finngálknað, nema hvað vísað er til hans i Fjórðu málfræðiritgerðinni (bls. 131):

Hér er kylfan kennd eður merkt með þeim tilfellum sem af henni máttu gjörast, og hefir ýmsar líkingar í einni vísu, og kallar Ólafur það finngálknað, er lík[ing]um1 er skipt á einum hlut í hinni sömu vísu og ber best að hinn sami háttur sé haldinn um alla vísu, allra helst í einstaka vísum en eigi hæfir sá háttur í stórkvæðum.

Hér er skynsamlega ályktað, að vel fari á samfelldri líkingu um hlut í einni vísu, en það yrði þreytandi í löngu kvæði. Þegar orðið finngálknað kemur fyrir á seinni öldum (í lok átjándu aldar og um miðja 19. õld), er greinilega vísað til Málskúðsfræðinnar, berum orðum í elsta dæminu2 En allstaðar er þetta lagt að jöfnu, finngálknað merkir hið sama og nykrað. Það er, kveðskapnum er líkt við furðuskepnu sem er sett saman úr ósamstæðum hlutum. Nykur var skv. þjóðtrú ek. hestur sem lifði í võtnum og ám, steingrár á lit, og hófar hans og eyru sneru aftur.

Nútímaljóð
Sagan sýnir, að engin þörf hefur verið fyrir orðið finngálknað allt frá því að það fyrst kemur fyrir, um miðja 13. öld. Þá sárasjaldan að það hefur verið notað, hefur það eingongu verið notaðsem samheiti við nykrað. En orðið nykrað er svo fast í sessi um það að breyta um líkingar í miðjum klíðum, eða blanda saman líkingum, að það væri hið mesta óráð að fara að rugla með það. Hinsvegar er þörf fyrir orð um nálægt fyrirbæri sem er þó eðlisólíkt. Það er að tengja saman andstæður í einni ljóðmynd eða lýsingu, ósamrýnanlega hluti. Þetta fylgir módernisma í bókmenntum sem er talinn hefjast um 1870. En það er einkum frá því um aldamótin 1900 sem ýmsir boðberar hans3 leggja áherslu á að ljóðmynd verði því áhrifaríkari sem hún tengi saman sundurleitari atriði - en undir niðri séu mikilvæg tengsl. Við getum tekið dæmi úr ljóði eftir Halldór Laxness frá 1927 Nótt á tjarnarbrúnni:

á sælum vörum sorgarinnar
sofa turnar borgarinnar...

Hér er sorgin persónugerð í andstæðu sinni, sælu, og í þessum tveimur línum er önnur óskiljanleg mótsögn. Um hvað er yfirleitt sagt að það sofi á vörum? Bros eða koss, eitthvað sem mælanda finnst að ætti að fara að birtast á vörunum, en er þar ekki enn. Hitt væri hefðbundið, að segja turna borgarinnar sofa í speglun tjarnarinnar. Hvort orðalagið um sig er kunnuglegt, og því má lesanda finnast, að hann ætti að skilja setningu þar sem þetta tvennt er fléttað saman. En það er ómögulegt. Er þetta ekki á sinn hátt eins og finngálknin? Sett saman úr hlutum sem eru ekki bara óskyldir, heldur ósamræmanlegir. Útkoman verður eitthvað alveg nýtt, nánast óhugsanlegt. Þetta er í rauninni annað fyrirbæri en nykrað, þar sem bara er flökt á milli likinga. Ýmsar mótsagnir í ljóðum Halldórs eru af sama tagi og í dæminu hér að framan, einkum í ljóðum hans á árinu 1927. Fleiri dæmi og umfjöllun eru í bók minni: Kóralforspil hafsins (1992).
Þetta er allt annað fyrirbæri en langsótt eða óvenjuleg líking. Dæmi um slíkt má sjá í Vetrarmyndir úr lífi skálda. En þar líkir Hannes Sigfússon sól og skuggum við fugla, en landssvæðinu við deyjandi mann (bls. 90):

Við risum úr velktum hvílum
með vængstýfðri sól er flaug lágt yfir borgina
lyfti sér naumlega yfir veiðibráða reykháfana
og féll brennandi í hafið -
og vængbreiðir skuggar flugu
yfir stirðnaða jörð
og augu vatnanna brustu

Þetta er sérkennileg mynd, en þó skiljanleg. Hinsvegar hefst ljóðabálkurinn á svo undarlega samsettri mynd, að kenna má við finngálkn. Hér er talað um kvöldskin - ekki sólar, heldur blóðs. Og það leggur snörur í djúpin til að ná viðmælanda(bls 87):

Djúpt sefur þú í djúpi mínu
Og dumbrautt kvöldskin blóðs míns sveiflar geisla snörum
í gegnum auð og barkaslituð fiskinetin
Þau ná of grunnt, þú sefur dýpra

Mótsagnir setja einnig sterkan svip á Tímann og vatnið eftir Stein Steinar og síðustu ljóð hans, eins og ég rek í fyrrgreindri bók. Í þessum ljóðum ber mest á hlutgervingu, þ. e. að talað er um sértæk hugtök sem hlutir væru, og gjarnan er þetta þá gert myndrænt. Þetta eru óskiljanleg orðasamband gerð úr liðum sem eiga ekki saman. Hér má telja: úr hafsaltri rigningu eilífðarinnar (bls.255), Þung angan hins óskiljanlega (bls.277), í holspegli tímans og húsvörður eilífðarinnar (bls.276). Undir hálfþaki dagsins (bls. 272) undir tvöföldum himni tveggja heima og tvísáinn akur tveggja heima (bls. 273). Endum þetta á óprentuðu ljóði Steins:

liðinn dagur

um mitt dulráða andlit
fer dimmblár skuggi
dagsins í gær
ég sé hönd mína bærast
í blóðstokknu ljósinu
eins og blóm sem grær
meðan draumur minn felst
undir drúpandi vængjum
dagsins í gær

Hér er margt sem lesendur kannast við, en ljóðið er saman sett úr svo óskyldum hlutum að heildin gengur ekki upp röklega. Þvi virðist tilvalið að kenna slíkan skáldskap við finngálkn. Nú mun einhver spyrja til hvers skáldin séu að þessu. Svo mikið er víst, að ekki kemur slíkt orðalag neinum boðskap á framfæri, né annarri lífsvisku, enda er það óskiljanlegt venjulegum röklegum skilningi. Það er í besta lagi hægt að láta það orka á sig eins og mótsagnir Zen-búddista, sjá óvæntar sýnir opnast í nýjum orðasamböndum. En það er heldur ekki ónýtt, því það hefur löngum verið talið aðal skáldskapar. Finngálknið má virðast sett saman úr manni og fugli eða hesti, en verður þó hvorki brúklegt sem dráttarklár né sem matfugl, það er bara hægt að undrast og skoða.
Þessi samtenging andstæðna í mynd hefur verið kallað meginatriði módernismans þ,. e. sundruð framsetning, órökleg og myndræn. En þessa gætir sérstaklega í surrealískri list, og því sýnist mér tilva1ið að kalla hana finngálknaða. Við tölum þá um finngálknuð ljóð og sögur í stað þess að segja surrealísk. Kannski finnst fólki fara verr á því að tala um finngálknastefnu í stað surrealisma4, eða að kalla surrealísk skáld finngálknara. KölIum þau þá bara finngálknuð skáld, segjum t.d. að Steinn Steinarr hafi verið ansi finngálknaður síðustu árin, eða ort býsna finngálknað. En annars sýnist mér augljós ávinningur að því að nota orð af íslenskum stofni frekar en frönskum; það er eins og vant er gagnsærra, við sjáum betur megineinkenni stefnunnar.

Aftanmálsgreinar:
1. Þetta er leiðrétting mín, í textaútgáfunni stendur: ”likvm”.
2. 2. J.J. [Jón Jónsson (Johnsonius) sýslumaður (1 49-1 826)1; Islanzvaka bls. 230. Annas dæmi er i bréfi Jónasar Hallgrímssonar til Konráðs Gíslasonar í mars 1844 (sjá Rit J.H. II, 169, en hið þriðja er í kvæði í Æfisögu Gísla Konráðssonar bls. 275. Það er þó vafasamt, útgefandi les; „mál þó rísi finngálknað“. Ekki er kvæðið ársett, en æfisagan skráð um 1852 skv. útgefanda bls. iii. Eg þakka Gunnlaugi Ingólfssyni á Orðabók Háskóla Íslands fyrir að senda mér dæmin.
3. M a. skáldin Marinetti, Tzara, Reverdy og Breton. Því voru surrealistar einatt að vitna til klausu úr Söngvum Maldorors eftir Lautréamont (frá árinu 1869); „Fagurt eins og þegar saumavél og regnhlíf hittast af tilviljun á líkskurðarborði“.
4. Þetta orð ber að ber að skrifa og bera fram með u en ekki ú, því það er komið úr frönsku surréalisme, [syrrealism], u er nær því en ú.

Heimildir:
Blómstrvallasaga Leipzig 1855.
Den tredje og fjærde grammatiske afhandling i Snorres Edda [.. . 1 Khöfn 1884.
Faksimile af de islandske Physiologusfragmenter Romanske stenarbejder 2 - 1984 (teikning á bls. 61).
Halldór Laxness Kvæðakver 2. útg. Rvík 1949.
Hannes Sigfússon: Ljóðasafn. Rvík 1982.
Islensk orðsifjabók Rvik 1989.
J.J.: Jslanzvaka eða Kvæði af draum-vitru Islands 1779 um byrjun Bókmenntafelagsins er rættist árinu eptir. Rit þess íslenska Lærdóms-Lista Felags (I, 201- 252) Khöfn,178O
Rit eftir Jónas Hallgrímsson I-V. Rvík 1929-37.
Snorra-Edda Reykjavík 1975.
Steinn Steinarr: Ljóðasafn. Rvík 1991. og handrit í Landsbókasafni (Lbs 770 fo1.)
Stjörnumörk Fire og fyrretyve [...] prøver af oldnordisk sprog og litteratur [...] (bls. 476-9) Khöfn 1860.
Styrbjarnar þáttur Svíakappa. Flateyjarbók (11, 70-73), Christiania l862
Þjóðsögur Jóns Árnasonar I-VI. Rvík 1954-61.
Æfisaga Gísla Konsáðssonar ens fróða skrásett af sjálfum honum. Rvík 1911-14.
Orvar-Odds saga. Fornaldarsögur Norðurlanda (II, bls. 199-363) Akureyri 1954.
Lesbók Mbl. feb. 1993

Ill danska

Ill danska
Skemmtilegust tökuorða þykja mér þau sem hafa aðra merkingu í íslensku en í málinu sem þau eru tekin úr. Því miður hefi ég ekki skráð þau hjá mér, svo hér koma bara fáein sem ég mundi eftir í svipinn. Ég vona að það verði einhverjum hvatning til að gera efninu betri skil. Ymislegt má finna í Orðsifjabók Asgeirs Bìöndals, svo sem orðið ,,dobia = ,,mikið af einhverju, flækja, ruglingur [...] Hugsanlegt er að orðið sé komið úr latínumáli skólapilta ,in dubio”.
Oft munu þessi orð tekin úr slangri, og það skýrir stundum merkingarmun, sem í fljótu bragði virðist töluverður. Orðið ,,skrall” þýðir eingöngu drykkjuveisla, svall á íslensku, en danska orðið ,,skrald” merkir oftast ,,skellur, skyndilegur hávaði, auk þess sorp. Hinsvegar er íslenska merkingin til á danska orðinu í slangri, þegar um miðja nítjándu öld (dasla). Hér verður reynt að sniðganga slík orð, sem í rauninni eru tekin upp án merkingarbreytingar. Auk ofangreindrar merkingar íslenska orðsins er orðasambandið ”vera í skralli” = vera í rusli. Það er haft um verulega skemmd tæki, og í yfirfærðri merkingu um fólk, sem er illa á sig komið andlega, einkum iðrunarfullt, held ég. En í því sambandi eru augljós merkingartengslin við da. ,,skrald= sorp.

,,Það er allt í volli” hefur svipaða merkingu, líklega þó fremur um ástand mála almennt, eða að fyrirætlun sé að fara út um þúfur. Sjálfsagt komið úr dö ”det er fanden i vold”.
Algengt mun um tökuorð að merkingin þrengist, orðið er aðeins tekið upp í einni notkun þess. Þannig er orði ,,græjur” farið að merkja ,,hljómflutningssamstæða”, enda er tökuorðið ólíkt þjálla en síðartalda samsetningin, sem horfir hreinlega til málspjalla i samanburði við tökuorðið, komið úr d. ,,grejer” = áhöld, ræki.
Orðið galli [l:] þýðir Blöndal sem ,,l.Gala 2. (pop) Olietöj. og merkir með?, en það þýðir: ,,Udenlandsk Laaneord, alm. i daglig Tale, is. i Byeme; ikke anerkendt i Skriftsprog”. Seinni merkingin ,,hlífðarföt við óþrifalega vinnu, er nú hin venjulega, og er það einkennilegur umsnúningur á orðinu1. sem hvarvetna þýðir: fínasti hátíðarbúningur. Sjálfsagr er þetta úrvalsdæmi um það sem Halldór Halldórsson kallaði háðhvörf. Nema hvað, svo hafa þau gerst aftur, þannig að merking orðsins hefur farið heilan hring. Ég hefi aldrei heyrt þá merkingu nema í gríni; ,,Best að skvera sig í gallann og drífa sig í slarkið, þ.e. fara í sparifötin og halda á skemmtistað.
,,Ofsa- ertu góður gæi, Herra Reykjavík, skæsleg læri, loðin bringa", segir m.a. í Stuðmannatexta. Þetta lýsingarorð, skæslegur" virðist ekki vera til í dönsku, en þangað er þó fyrri liðurinn sóttur, ,,skejs” = peningar. Þetta er þá nýmyndun í stíl við orðiö félegur, sem hefur reyndar orðið háðhvörfum að bráð og merkir nú einmitt ,,aIlt annað en félegur”. Það er annars gaman að því, að danska orðið er tekið upp úr þýsku: ,,Scheiss”= skítur, og kann að vera gamansöm útlegging á ,,skilling. Enn segja Danir ,,ikke en skid" = ekkert, og setningin ,,Jeg har ikke en skejs" hafði þá sömu merkingu og setningin ,,jeg har ikke en rød øre”, ég á ekki eyri.
Íslendingar sem nýkomnir voru til Danmerkur, þekktu ýmsir með fögnuði gamlan kunningja, hikorðið ,,sko”, þegar þeir heyrðu ,,sgu” í dönsku. Og svo urðu þeir alveg hissa, þegar Danir settu í brúnimar yfir slíkum munnsöfnuði. Því þetta er svo kröftugt blótsyrði í dönsku (komið úr: så Gud hjælpe mig!), að varðar ávítum í danska þinginu, eins og Preben sjóræningi mátti sannreyna í fyrra. En Islendingar munu almennt hafa þann (mis)skilning sem Ásgeir BöndalI bókar: ,,eiginl. bh. af skoða (s.þ.) hálfgildings to. úr d. skue (skåde), ,,skoða”.
Hinsvegar er íslenska orðið ,,tossi” miklu mildara en foreldrið danska, ,,tosse”, sem merkir nánast fáviti. Islenska orðið hefur orðið til við ýkjur geðstirðs kennara, því það merkir nú eingöngu nemandi sem ekki stendur sig vel í skóla, og þarf ekkert frekar um að kenna bágu gáfnafari en öðru, t.d. leti.
Orðið ,,klikkaður, ,,klikka(st) þekkir Blöndal eingöngu í sömu merkingu og danska orðið hefur, ,,smusket, plettet”, auk þess sem byssa klikkar. Svo líklega hafa myndhvörfin gerst nýlega í íslensku, ég hefi aldrei heyrt orðið í annarri merkingu en ,,geðveikur, geðtruflaður”.
Orðið ,,frekjudós” var mikið notað í mínu ungdæmi, og varð okkur systkinum mikið heilabrotaefni, af hverju dós. En dr. Bjami Einarsson kom með skýringuna, sem var eins og Kólumbusareggið; þetta er komið úr ,,frække tøs”. Seinni liðurinn er líka tekinn beint upp í forminu: ,,tussa”, sem skammaryrði um konu: ,,Hvað meinarðu, helvítis tussan þín”. Þetta orð hefur Blöndal líka í merkingunni: kynfæri konu, en það er þá bara enn eitt dæmi um fyrirbærið hluti fyrir heild, einsog ,,pige/píka”.
,,Krútt” er nánast samheiti við nafnorðið ,,elska", og er þó áreiðanlega komið úr dönsku ,,krudt = skotpúður. Samhengið væri vandséð ef ekki væri varðveitt slanguryrðið ,,krudtugle” = ,,livligt og foretagsomt bam der ikke kan sidde stille ret længe ad gangen (jfr. have krudt i røven)”. Ekki er að efa, að hér er uppruninn kominn, Íslendingar hafa bara sleppt uglunni.
,,Það er alkunna, að noti Íslendingar það r-hljóð sem tíðkast um aIlt meginland Evrópu, þá eru þeir helst settir til læknis, því þetta telst bæklun. Það er gaman fyrir íslenskukennara erlendis að gera Frakka, Þjóðverja eða Dani orðlausa með því að segja þeim þetta. En fyrir bragðið á íslenska orð um þennan framburð, sem ekki heitir neitt sérstakt í daglegu tali hjá þessum þjóðum. Og þó er íslenska orðið komið úr dönsku, en við hressilega merkingarbreytingu, ‚,skroll, skrolla [1:] er vitaskuld tekið úr dönsku ,,skråle”, sem merkir nánast að garga eða æpa. Þegar Danir gerðu það, hefur lslendingum líklega þótt mest koma til r-sins þeirra.
Á unglingsárum mínum (ég er Reykvíkingur, fæddur 1941) var mikið talað um að ,,djamma", ,,fara á djamm". Og ekki var annar uppruni Iíklegri en að þetta væri komið úr enska orðinu ,,jam”, sem merkti þó bara ávaxtasulta! Tengiliðurinn virðist mér nú vera .,jamsession”, þ.e. ,,frjálslegur djassleikur, þar sem hver Ieikur eftir sínu höfði". Nema mönnum hafi þótt svo mikil þröng á einhverju gleðiþingi, að enskumælandi maður hafi kvartað yfir því að hann væri alltaf að rekast utan í fólk (jam into somebody), og lítt enskumælandi íslendingur misskilið hann svona málfrjósamlega.
,,Hvemig er vinnan hjá þér, Guðjón? ,,O, maður er nú bara í einhverju fokki/ o. þetta er engin vinna, bara fokk/ maður er mest að fokka”, gátu verið svör Guðjóns, og leggur hann greinilega merkinguna ,.hangs” í orðið, sem er þó líklega komið úr enska orðinu ,.fuck, En það merkir ekki bara að serða, heldur er einnig mikið notað sem blótsyrði, eins og allir kvikmyndaunnendur vita, amk þeir sem horfa á Eddie Murphy. Og því ímyndaði ég mér, og kenndi nemendum mínum árum saman, að íslenska merkingin hefði orðið til hjá einhverjum slóða í bretavinnunni, sem skildi lítið í skömmum offisjerans, sem orgaði eitthvað í líkingu við: ,,What the hell are you fucking, when you should be working. you fucking icelanders” Nú er íslenska orðið að vísu gamalt í merkingunni ,,fara hratt, gossa" (láttu það fokka), en hún er einmitt andstæð nútíðarmerkingunni. Erlend dæmi sem ÁBl. telur, ,,gd. fukke, hreyfa fram og aftur, sæ focka ýta, stjaka við”, eru augljóslega nátengd merkingu enska orðsins. En þetta hrekur líka framangreinda kenningu mína um bretavinnuna, merkingin ”hreyfa fram og aftur” leiðir eðlilega yfir í merkinguna gaufa.
Það er e,t.v. við hæfi að ljúka þessu spjalli á uppnefni þeirrar þjóðar sem Islendingar hafa sótt flest framangreindra orða til, ,,baunar”, í eintölu ,,bauni”. Orðabók Blöndals hefur þessa skýringartilgátu: ,,Oprindelse formodentlig af, at gule Ærter er hlevet betragtede som en særlig dansk Nationalret". Nú má vera að á 19. öld hafi þetta verið vinsælli réttur í
Baunmörk en nú er. Þó þykir mér miklu líklegra að orðið ,,baunar” sé einfaldlega tekið eftir ,,bønder”, og hafi misskilist við svipaðar aðstæður og þegar íslenskur bóndi sá franska sjómenn benda á sig og segja: ,,voilà un paysan”, og hélt að þeir meintu; sá er í eigulegri flík, svo hann fór úr henni og seldi flöndrurunum fyrir vín eða biskví. En þetta er frægasta dæmið um tökuorð misskilnings, franska orðið fyrir ,,bóndi" fór að tákna flíkina sem við öll göngum í. – Einnig þessa kenningu varð ég að yfirgefa þegar ég leit í Ásgeir Blöndal, sem segir orðið ”peysa” komið úr ”wambeis”.

Heimildir:
ÁBI = Ásgeir Blöndal Magnússon: Íslensk orðsifjabók. Rvík 1989.
Politikens slangordbog. Kbh. 2.udg. 1986
Orðabók um slangur ... Rvík 1982.
Nudansk ordbog. 13. udg. Kbh. 1987.
OED Oxford English Dictionary. 2.pr. Oxford 1961-86.
Websters deluxe unabridged Dictionary. 2. edition. New York 1979.

fenrisulfur i Rom

Fenrisúlfur í Róm

Guðinn Týr er mikillar ættar, eins og alkunna er, nafn hans er samstofna nöfnum höfuðguða Grikkja og Rómverja, Zeus og Júpiter, svo og lýsingarorðinu divus í latínu, guðdómlegur. En svo mjög hefur hróður hans bliknað þegar norrænar goðsögur festast í kvæði eða á bækur, að vart er eftir nema eitt afreksverk, að vísu mikið. Hann einn varð til að leggja hönd sína í kjaft Fenrisúlfi til tryggingar því að fjöturinn GJeipnir, sem æsir lögðu á úlfinn, væri ekki með svikum gjör, og að æsir myndu leysa úlfinn, gæti hann ekki losað sig sjálfur. En eins og allir lesendur þessa pistils vita, sat úlfurinn blýfastur, og síst datt ásum í hug að standa við heit sitt. ,,Þá hlógu allir æsir nema Týr. Hann lét hönd sína. segir í Snorra-Eddu (bls. 37).
Nú sýnist mér að þetta afreksverk verði að hafa af Tý, m. ö. o. að þetta muni ekki vera forn goðsaga. Það leiði ég af eftirfarandi vísbendingum. Í fyrsta lagi minnir mig að einhversstaðar hafi því verið haldið fram, þótt ég finni ekki staðinn (Sigurður Nordal?), að samsetning fjötursins Gleipnis beri meiri keim af hugarflugi skálds en af þjóðsögum eða goðsögum. En svo segir í Snorra- Eddu (bls. 36):

Þá sendi Alföður þann er Skírnir er nefndur, sendimaður Freys, ofan í Svartálfaheim til dverga nokkurra og lét gera fjötur þann, er Gleipnir heitir hann var gjör af vi. hlutum, af dyn kattarins og af skeggi konunnar og af rótum bjargsins og af sinum bjarnarins og af fugls hráka — og þótt þú vitir eigi áður þessi tíðindi, þá máttu nú finna skjótt hér sönn dæmi, að eigi er logið að þér, séð munt þú hafa, að konan hefir ekki skegg og engi dynur verður af hlaupi kattarins, og eigi eru rætur undir bjarginu, og það veit trúa mín, að jafnsatt er það allt, er eg hefi sagt þér, þótt þeir sé sumir hlutir, er þú mátt eigi reyna.

Hallvard Magerøy hefur fjallað um þann hlut er síst má reyna, því auðvitað hafa birnir sinar, þótt þær séu ekki augsýnilegar eins og á táfetum. Magerøy bendir á það sem hugsanlega skýringu, en líklegast finnst honum að upphaflega hafi þetta verið: ,,af hornum bjarnarins”. En ekki þykir honum neitt tortryggilegt við þuluna að öðni leyti, hann leiðir m.a.s. rök að því að hún hafi verið í kvæði, þar sem hún sé stuðluð. Og goðsögur útskýra einmitt hversvegna hlutirnir séu eins og þeir eru. Hitt er athyglisverðara, að þessi saga um handarmissi Týs virðist ekki eiga sér neina hliðstæðu meðal goðsagna skyldra trúarbragða (ég leitaði í skrá Stith-Thomson). En margar helstu norrænar goðsögur eru til einhverri mynd fornindverskri og víðar. Fróðustu menn í Árnagarði og utan hafa ekki getað bent mér á hliðstæður, og í nýlegri, stórri alfræðibók um trúarbrögð á Háskólabókasafni, er fátt slíkt hægt að benda á í grein um Tý. Er þar þó sagt, að mikið hafi verið um þetta fjallað. Helst hafa menn séð hliðstæður í því, að Óðinn lét auga sitt fyrir visku. Þar er vísað til þess, aS Georges Dumézil hafi rakið hliðstæðu handarmissis Týs í sögu af hetjuskap Mucius Scaevola, Rómverja sem reyndi að myrða Lars Porsenna, Etrúskakóng sem réðist á Róm um 500 f. Kr. En Scaevola myrti annan mann í misgripum, og var handtekinn. Hann sagði hvað hann hefði ætlað sér, og að 300 ungir Rómverjar hefðu svarið að vinna það víg sem honum hefði nú mistekist.

Porsenna bauð að kasta honum á bál, ef hann segði eigi allt hið sanna af samsærismönnum. Múcíus Scaevola lét sér eigi bilt við verða, og réttir hægri höndina í fórnarbál eitt mikið, er þar brann hjá þeim; höndin brann til kola, en Múcíus stóð kyr í sömu sporum, sem ekki væri að. Konungur undraðist slíka kallmensku og gaf honum líf og heimfararleyfi. Segja sumir, að Porsenna hafi orðið skelkaður og haldið heim til sín.

Þannig sagði Páll Melsteð frá þessu (bls. 104). Dumézil getur sér þess til (bls.149 o.áfr.) að Mucius hafi logið til um hina 300, og því megi þetta kallast eiðrof. Nokkuð virðist þó langsótt að tengja þetta við Tý. En Dumézil lagði áherslu á, að hann hafi verið guð hins lögformlega, einnig í hernaði, og því sé eðlilegt að hann leggi hönd sína að veði fyrir tryggðum, þafnvel þótt rofnar verði (bls. 125 o.áfr.). Ennfremur bendir Dumézil á fyrri atburð í stríði Rómverja gegn Etrúskum, þegar eineygð hetja, Cocles, varði einn brú gegn Etrúskum, aðallega með æðisgengnu látbragði og með því að hræða þá með grettum, og minnir það hann allt á Óðin. Ennfremur telur Dumézil hliðstæður við írskar goðsögur (bls. 153—9) og virðjst það enn langsóttara.
En annað atriði virðist mér miklu skyldara handarmissi Týs, og það er einnig í Róm. Við vesturenda Circus maximus, rétt hjá Ponte rotto yfir Tíber, stendur ævagömul kirkja, Santa Maria in Cosmedin. Upphaflega var þessi bygging hlaða fyrir gjafakorn, en var breytt í kirkju um 400 e. Kr. Og í opnu anddyri kirkjunnar stendur fornrómverskur steinskjöldur mikill, hálfur annar metri í þvermál, hringlaga með andliti á. Göt eru fyrir augu, nasir og munn, og talið að þetta hafl verið ek. rist fyrir niðurfall. Í því sambandi er athyglisvert, að rétt hjá kirkjunni er Ræsið mikla, Cloaca maxima merkt inn á Rómarkort. Þessi steinskjöldur er kallaður ,,bocca della verità”, þ.e. sannindamunnur. En það byggist á þeim þjóðsið, að stinga hendi inn í munnop skjaldarins þegar eiður er svarinn, en skv. þjóðtrúnni á hann þá að bíta höndina af, ef rangur eiður er unninn. Jafnan er þarna urmull af ferðamönnum sem láta taka mynd af sér með höndina í munnopi ófreskjunnar (þetta er kallað ,,uhyre” í dönskum ferðamannabæklingi). Vinur minn einn laumaði hendi sinni bak við skjöldinn og greip um hönd manns sem sagði einhverja lygi og brosti framan í myndavél, en sá stökk þá hálfa hæð sína í loft upp.

Nú finnst mér mjög líklegt, að tengsl séu milli þessa og sögunnar um handannissi Týs, því svo mörg sérkennileg atriði eru sameiginleg. En hvort er nú líklegra. að þessi þjóðtrú Rómverja byggist á fornri indóevrópskri goðsögu, sem ella sé aðeins varðveitt í Snorra-Eddu, eða að saga Snorra- Eddu byggist á þessari rómversku þjóðtrú? Um aldur hennar hefi ég þær upplýsingar einar, að hún sé frá miðöldum. Ég hefi ekki sérfræðiþekkingu á þessu sviði, en mér sýnist síðari skýringin miklu líklegri. Bæði vegna þess að heimildir skortir fyrir goðsögn, eins og áður segir, og eins vegna hins, að þessi þjóðtrú er einmitt líkleg til að spretta af ímyndunarafli fólks andspænis þessu gapandi stóra steinandliti, sem enginn vissi til hvers hafði verið gert, upphaflegur tilgangur þess löngu gleymdur. Auk þess stóð það í fordyri kirkju, en það var víðar en á Íslandi að menn unnu eið með því að leggja hönd á helga bók, fer þetta þá að verða allnáið samband.
Ekki skal hér fjallað um önnur atriði þessarar sögu af ásum og Fenrisúlfi, en ekki væri þetta einsdæmi þess að rómversk mannvirki berist inn í norræna goðafræði. Ekki langt frá steinandliti þessu er Colosseum (og svipuð hringleikahús voru víða í Rómarríki), en þetta voru einstæð mannvirki. m.a. að því leyti, hve margir gátu í senn gengið inn í þau eða út úr þeim. Fyrir sextíu árum benti Magnus Olsen á Colosseum sem fyrirmynd Vathallar. En svo er henni lýst í Grímnismálum:

Fimm hundruð dura
og um fjórum tugum,
svo hygg eg á Valhöllu vera
átta hundruð einherja
ganga senn úr einum durum,
þá er þeir fara við vitni að vega.

Hvern dag, þá er þeir hafa klæðst, þá hervæða þeir sig og ganga út í garðinn og
berjast, og fellir hver annan. Það er leikur þeirra

segir í Snorra-Eddu (bls. 44), og er augljós hliðstæðan við gladiatora. Þótt þeir risu ekki upp frá dauðum, þá kom jafnan maður manns í stað fyrir næstu leika.
Nú var þeim leikum löngu hætt þegar Grímnismál voru ort, en ekki skal ég getum að leiða hvenær þessar frásagnir bárust til Norðurlanda né í hvaða formi. Það gerir Olsen í tv. grein. En í rauninni þurfti ekki mikið til, það nægði að einn maður kæmi til Norðurlanda og segði sögu af miklu steinandliti, og að menn legðu hönd sína í munn þess til tryggingar því að þeir særu sannan eið, enda biti það höndina af við meinsæri. Þetta væri nægileg uppspretta sögunnar um Fenrisúlf og Tý, fyrir fólk sem leiddi hugann að Ragnarökum.

Tilvitnuð rit:
Georges Dumézil: Mitra- Varuna. [ensk þýðing] New York 1988.
Edda Snorra Sturlusonar- udgivet... ved Finnur Jónsson. Kbh. 1931. Stafsetning færð til nøutmahorfs af E.Ó.
How to visit Rome and Latium. Róm, 1984. Myndin tekin eftir bls. 121.
Ole Høeg: Turen går til Rom. 13. udg. Kbh. 1978.
Guide de Tourisme Michelin: Rome. Paris 1988; ,,Piazza bocca dclla verità.
Hallvard Magerøy: ,,Af sinum bjarnarins, Minjar og menntir Rvík 1976, bls. 358—64.
Fornaldarsagan, íslenzkuð og aukin eptir sögubók H. G. Bóhrs af Páli Melsted. HÍB, Rvík l864.
Magnus Olsen: ,,Valhöll með hinar mörgu dyr. M.O.: Þættir um lífog ljóð ... Rvík 1963, bls. 124—147,
Edgar C. Polonié: ,,Týr” Encyclopaedia of Religion, XV, bls. 108—9. Mircea Eliade ed., New York 1987.